Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 18. febrúar 2026 09:06 Myndin sýnir ljós parsins þar sem þau eru á leið upp á topp. www.foto-webcam.eu Réttarhöld hefjast á morgun yfir kærasta Kerstin G, sem lést af völdum ofkælingar á fjallinu Grossglockner í Austurríki fyrir um mánuði síðan. Ákæruvaldið segir að þar sem kærastinn hafi verið mun reynslumeiri en konan, hafi hann gerst sekur um alvarlega vanrækslu þegar hann yfirgaf hana á fjallinu og snéri ekki aftur eða leitaði aðstoðar í tíma.
Samkvæmt BBC hefur málið vakið mikla athygli í Austurríki og klifursamfélaginu eins og það leggur sig. Grossglockner er 3798 metra hátt og hæsta fjall landsins. Ákæruvaldið hefur sakað manninn, sem er kallaður Thomas P í gögnum málsins, um að hafa gert röð mistaka eftir að parið lagði af stað á Grossglockner. Hann hefur meðal annars verið gagnrýndur fyrir að taka kærustuna með þrátt fyrir reynsluleysi hennar, fyrir að hafa lagt af stað tveimur klukkustundum of seint og fyrir að vera vanbúinn. Alls eru níu mistök talin til. Saksóknarar hafa sagt að maðurinn hefði átt að snúa við á meðan það var enn mögulegt, þar sem -8 stiga frost var á svæðinu og allt að -20 stiga frost í vindi, sem náði allt að 74 km/klst. Verjendur mannsins segja parið hins vegar hafa skipulagt gönguna saman og að þau hafi verið sammála um að halda áfram þegar þau náðu svokölluðum „Morgunverðarpunkti“. Það er síðasti staðurinn þar sem fólk snýr við ef það ætlar ekki á toppinn. Að neðan má sjá göngumann klifra upp Grossglockner árið 2024. Þá var klukkan orðin 13:30 þann 18. janúar en að sögn ákæruvaldsins varð parið fast klukkan 20:50 um kvöldið. Maðurinn hringdi hins vegar ekki á lögregluna né sendi út neyðarboð þegar lögregluþyrla flaug yfir klukkan 22:50. Það var ekki fyrr en eftir miðnætti þann 19. janúar að hann gerði yfirvöldum viðvart um hvar þau voru. Thomas heldur því fram að hann hafi óskað eftir aðstoð í símtali eftir miðnætti og neitar því að hafa sagt að allt væri í lagi. Lögregla segir hann hins vegar hafa slökkt á hringingum á símanum eftir samtalið og ekki svarað tilraunum til að ná í hann eftir það. Hann hafi yfirgefið Kerstin um klukkan 02:00, án þess að búa um hana eftir bestu getu, og þá hafi hann ekki gert yfirvöldum viðvart um stöðu mála fyrr en klukkan 3:30. Þá var veður orðið þannig að björgunaraðgerðir voru ómögulegar. Thomas P á yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi verði hann fundinn sekur.
Austurríki Fjallamennska Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fleiri fréttir Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Sjá meira