Flykktust upp í turn til að sjá hvort sexan kæmist í loftið Kristján Már Unnarsson skrifar 17. febrúar 2026 09:19 DC 6-vél Iscargo á Reykjavíkurflugvelli. Þaðan voru flugvélarnar gerðar út til fraktflutninga á árunum 1972 til 1982. Pétur P. Johnson Flugtök Iscargo-sexanna frá Reykjavíkurflugvelli þóttu svo spennandi að starfsmenn Flugmálastjórnar flykktust jafnan upp í flugturn til að fylgjast með. Flugbrautirnar voru í stysta lagi fyrir fullhlaðna sexu auk þess sem hún klifraði hægt.
Flugfélagið Iscargo starfaði á árunum 1972 til 1982. Lengst af rak það tvær DC 6-flugvélar en undir lokin eina Lockheed Electra-vél. Í þættinum Flugþjóðin á Sýn+ um litlu flugfélögin er rætt við einn af flugmönnum Iscargo, Reidar Kolsöe. „Þegar hún fór í loftið - ef þú fórst til norðurs - þá hristust nú allar rúður í miðbænum því að við bara rétt skriðum yfir þökin. Og ef við fórum til suðurs, þá þurftum við að taka beygju eftir að við komum framhjá skreiðarskýlinu til að komast yfir Kársnesbrautina. Því að hún klifraði ekki neitt,“ segir Reidar. Iscargo-sexa í flugtaki af Reykjavíkurflugvelli.Baldur Sveinsson Og hefur eftir kunningja sínum að á skrifstofu Flugmálastjórnar hafi jafnan ríkt spenna í hvert sinn. „Þá var alltaf kallað: „Strákar, strákar! Iscargo er að fara í loftið!“ Þá fóru þeir alltaf upp í turn að fylgjast með. Komast þeir í loftið eða komast þeir ekki í loftið?“ segir Reidar Kolsöe og hlær en hann lýsir Iscargo-árunum sem mesta ævintýri síns flugferils. Hér má sjá fjögurra mínútna kafla: Flugtökin frá Reykjavík urðu öruggari með Lockheed Electra-vélinni sem Iscargo fékk árið 1980. Reidar segir hana eina bestu flugvél sem hann hafi flogið. Hún hafi verið eins og raketta í loftið og farið upp nánast eins og þyrla. Lockheed Electra-flugvél Iscargo.Pétur P. Johnson Iscargo keypti Flugfélagið Vængi árið 1979. En svo tók að fjara undan rekstrinum og árið 1981 keypti Arnarflug Vængjahluta Iscargo og hóf innanlandsflug. Arnarflaug keypti svo Iscargo árið 1982 og fylgdi flugleyfi til Amsterdam með í kaupunum. Kristinn Finnbogason, kraftaverkamaður Framsóknarflokksins, var þá orðinn aðaleigandi Iscargo en miklar pólitískar deilur urðu í landinu vegna þeirra viðskipta, sem Reidar rifjar upp í viðtalinu. Eftir að rekstri Iscargo lauk stóðu sexurnar lengi óflughæfar við flugskýli 3 á Reykjavíkurflugvelli. Framhlutar beggja eru varðveittir á íslenskum flugminjasöfnum.Baldur Sveinsson Framhlutar DC 6-véla Iscargo fóru báðir á söfn. Annar er utan á Flugsafni Íslands á Akureyri en hinn er á Flugminjasafni Egils Ólafssonar á Hnjóti í Örlygshöfn. Framhluti DC 6-flugvélarinnar utan á Flugsafni Íslands á Akureyri.Egill Aðalsteinsson Áskrifendur geta séð alla þætti Flugþjóðarinnar í heild á streymisveitunni Sýn+.
Flugþjóðin Fréttir af flugi Reykjavíkurflugvöllur Tengdar fréttir Safnstjórinn segir þessa flugvél merkasta gripinn Þegar spurt er hvaða flugvélar hafa markað dýpst spor í flugsögu Íslands nefna sumir þristinn eða Boeing 757-þotuna. En það heyrast einnig raddir sem segja litla Cessnu 180 skipa stóran sess og safnstjóri Flugsafnsins á Akureyri segir vél af þeirri gerð merkasta dýrgrip safnsins. 14. febrúar 2026 07:57 Söguðu gat á flugsafn til að stinga inn Boeing 757 Furðulegar tilfæringar mátti sjá á Akureyrarflugvelli í dag þegar gat var sagað á flugskýli til að troða þar inn framhluta flugvélar. 1. október 2025 21:40 Vill að flugminjasafnið fái sína reisn á safnasvæðinu á Hnjóti Bútur úr fyrstu flugvél Íslendinga, elsta flugskýlið og gamall Varnarliðsþristur eru meðal gripa sem varðveittir eru á flugminjasafni lengst vestur á Vestfjörðum, á bænum Hnjóti í Örlygshöfn, dalkvos inn af Patreksfirði. 17. október 2023 21:21 Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Fleiri fréttir Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Sjá meira
Safnstjórinn segir þessa flugvél merkasta gripinn Þegar spurt er hvaða flugvélar hafa markað dýpst spor í flugsögu Íslands nefna sumir þristinn eða Boeing 757-þotuna. En það heyrast einnig raddir sem segja litla Cessnu 180 skipa stóran sess og safnstjóri Flugsafnsins á Akureyri segir vél af þeirri gerð merkasta dýrgrip safnsins. 14. febrúar 2026 07:57
Söguðu gat á flugsafn til að stinga inn Boeing 757 Furðulegar tilfæringar mátti sjá á Akureyrarflugvelli í dag þegar gat var sagað á flugskýli til að troða þar inn framhluta flugvélar. 1. október 2025 21:40
Vill að flugminjasafnið fái sína reisn á safnasvæðinu á Hnjóti Bútur úr fyrstu flugvél Íslendinga, elsta flugskýlið og gamall Varnarliðsþristur eru meðal gripa sem varðveittir eru á flugminjasafni lengst vestur á Vestfjörðum, á bænum Hnjóti í Örlygshöfn, dalkvos inn af Patreksfirði. 17. október 2023 21:21