„Þetta er sorglegur dagur fyrir lýðræðið“ Árni Sæberg skrifar 16. febrúar 2026 16:53 Anahita var viðstödd dómsuppsögu í dag en Elissa er búsett erlendis og átti ekki heimangengt. Vísir/Vilhelm Verjandi tveggja kvenna sem voru í dag sakfelldar fyrir að brjótast um borð í hvalveiðiskip segir rétt til mótmæla hafa að engu verið hafður með dóminum. Önnur konan segir þá sem stunda borgaralega óhlýðni sjaldnast dæmda rétt af dómsvaldinu á hverjum tíma en þeir fái uppreist æru í þegar litið er í baksýnisspegil sögunnar.
Anahita Babaei og Elissa May Philipps voru í dag sakfelldar fyrir að brjótast um borð í hvalveiðiskip í mótmælaskyni árið 2023 og dæmdar til 200 þúsund króna sektargreiðslu hvor. Katrín Oddsdóttir var verjandi þeirra í málinu. Hún telur ljóst að málið hafi tapast. „Þær fengu sem sagt sekt fyrir að klifra þarna upp þennan dag þrátt fyrir að ljóst sé að það hlutust engin tjón af þessari háttsemi. Við lögðum nú mikla áherslu á það í málflutningnum að hérna væri um að ræða tjáningarfrelsi og að réttur borgarans til þess að mótmæla sé nú sterkari en svo að ef það verður tjónlaust atvik sem einhver pirrar sig á, þá ætti það nú ekki að trompa þann rétt, af því að hann er stjórnarskrárvarinn.“ Þungt högg fjárhagslega Þær muni nú setjast yfir dóminn, sjá hvernig niðurstaða hans er rökstudd og meta hvort tilefni sé til að áfrýja dómnum. „Akkúrat núna þá eru þetta bara vonbrigði. Þetta er ekki gott fyrir íslenskt réttarkerfi að mínu mati, að hann sé að engu hafður þessi réttur til mótmæla, sem við vildum meina að væri miklu sterkari heldur en þessi almennu lagaákvæði sem dæmt er vegna.“ Í ofanálag við sektargreiðslur hafi þær Anahita og Elissa verið dæmdar til að greiða allan málskostnað, sem sé þeim þungt högg fjárhagslega. Þannig verði að koma í ljós hvernig möguleg málaferli fyrir Landsrétti verið fjármögnuð. Kom ekki á óvart Anahita segir að niðurstaðan hafi ekki komið á óvart. „Borgaraleg óhlýðni er í raun aldrei dæmd af dómsvaldi hvers tíma, hún er dæmd seinna í ljósi sögunnar. Þetta er sorglegur dagur fyrir lýðræðið, fyrir réttinn til mótmæla og fyrir vistkerfið og hvalina, auðvitað. Í gær var alþjóðlegi hvaladagurinn og í dag erum við dæmdar fyrir að verja þá. Fyrir fjörutíu árum ákvað heimurinn allur að vernda hvalina af því að þá hafði helmingur líffræðilegs fjölbreytileika tapast. Í dag, fjórum áratugum síðar, höfum við tapað 73 prósent. Hversu miklu meira þurfum við að tapa til þess að við sjáum að það er ekki glæpur að vernda hvali?“ Barátta þeirra Elissu hafi alltaf snúist um hvali og muni gera það áfram. Enn séu tvö virk hvalveiðileyfi og það sé í höndum stjórnvalda að stöðva hvalveiðar, burtséð frá niðurstöðu dómsins í dag.
Hvalveiðar Umhverfismál Mótmæli í tunnum Hvals 8 og 9 Dómsmál Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira