„Því sterkari sem við erum, því raunhæfari verður friður“ Samúel Karl Ólason skrifar 14. febrúar 2026 13:12 Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, ávarpaði öryggisráðstefnuna í München í dag. AP/Michael Probst Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kallar eftir auknum þrýstingi á Rússa. Það sé besta leiðin til að binda enda á stríðið í Úkraínu og segir hann að ráðamenn í Rússlandi virði ekkert nema styrk. Hann sagði árásir Rússa á óbreytta borgara í Úkraínu vera gífurlega umfangsmiklar. Rússar hefðu notað sex þúsund sjálfsprengidróna í janúar.
Einnig hefðu þeir gert árásir með 150 eldflaugum og rúmlega fimm þúsund svifsprengjum. „Þetta er svona í hverjum einasta mánuði. Ímyndið ykkur þetta yfir ykkar eigin borg,“ sagði Selenskí í ræðu sem hann hélt á öryggisráðstefnunni í München í dag og í pallborðsumræðum eftir ræðuna. „Rústaðar götur, eyðilögð heimili, skólar. Þetta er daglegt líf í Úkraínu vegna Rússa, í fjögur löng ár.“ Þá sagði Selenskí að ekki mætti finna eitt orkuver í Úkraínu sem hefði ekki orðið fyrir árásum Rússa. Ítrekaðar árásir hafa verið gerðar á orkuinnviði í Úkraínu samhliða mjög köldum vetri en undanfarna daga hefur frostið til að mynda verið milli 25 til fimmtán gráður í Kænugarði. Selenskí sagði einnig að styrk þyrfti til að þvinga Rússa til að taka friðarviðræður alvarlega. Rússar hefðu aldrei tekið viðræður alvarlega, fyrr en Úkraínumenn hófu árásir á olíuframleiðslu og innviði í Rússlandi. „Því sterkari sem við erum, því raunhæfari verður friður.“ Talaði um mikið mannfall Forsetinn sagði einnig að Rússar hefðu orðið fyrir gífurlegu mannfalli að undanförnu. Í desember hefðu 35 þúsund rússneskir hermenn fallið eða særst og þeir hefðu verið um þrjátíu þúsund í janúar. Rússar fá þó um fjörutíu þúsund nýja hermenn á mánuði en Selenskí sagði að markmið Úkraínumanna væri að fella eða særa að minnsta kosti fimmtíu þúsund Rússa á mánuði á þessu ári. „Jafnvel fyrir Rússa, myndi það vera alvarlegt. Það myndi hafa áhrif á Pútín,“ sagði Selenskí. Hann sagði Úkraínumenn gera allt sem þeir gætu til að koma á friði en að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefði engan áhuga á friði. Selenskí gagnrýndi ríki Evrópu fyrir að leyfa skipum úr svokölluðum „skuggaflota“ Rússa að flytja rússneska olíu undan ströndum Evrópu. President Zelensky calls out Europe for continuing to aid Russia's war effort by allowing Putin's 1000 oil tankers to freely traverse EU coastlines.Putin's constantly expanding global war aims now rely on this tanker fleet, yet Europe refuses to act. pic.twitter.com/tAlZxTsA0h— SPRAVDI — Stratcom Centre (@StratcomCentre) February 14, 2026 Þá sagði Selenskí að Úkraínumenn þyrftu góðar og kröftugar öryggisráðstafanir takist að koma á friði. Ekki væri samt hægt að samþykkja frið að svo stöddu, án þess að slíkar ráðstafanir liggi fyrir. Sagðist Selenskí vonast til þess að ráðamenn í Bandaríkjunum áttuðu sig á því en Úkraínumenn vilja að þeir heiti því að aðstoða Úkraínu, geri Rússar aðra innrás seinna meir. Hann sagðist mjög þakklátur fyrir þá aðstoð sem Úkraína hefði fengið. Öflugasti her Evrópu Samkvæmt Selenskí er ekki skynsamlegt að halda Úkraínumönnum utan Atlantshafsbandalagsins, þar sem Úkraína búi nú yfir öflugasta her Evrópu. Hann sagði Úkraínu styðja bandalagið og vonast til þess að það myndi styrkjast enn frekar. En þegar kemur að mögulegri inngöngu Úkraínu í NATO sagði Selenskí: „Í það minnsta, látið það vera ykkar ákvörðun, ekki Pútíns.“ 🔴 LIVE from #MSC2026 | Coalition of the Able? Securing Long-Term Support for Ukraine with @ZelenskyyUa, @RobertaMetsola, @SecGenNATO, @SenatorWicker, @amanpour https://t.co/sXklRlY9qD— Munich Security Conference (@MunSecConf) February 14, 2026
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Vladimír Pútín NATO Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira