Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Valur Páll Eiríksson skrifar 14. febrúar 2026 09:31 Sheringham (t.h.) segir ákvörðun hans gamla félags að ráða Tudor vera galna. Samsett/Getty Fyrrum stormsenterinn Teddy Sheringham, goðsögn hjá Tottenham Hotspur, kveðst í andlegu áfalli vegna ráðningar Lundúnaliðsins á Króatanum Igor Tudor.
Daninn Thomas Frank var rekinn í vikunni eftir strembið gengi í ensku úrvalsdeildinni. Sá danski fór frá Brentford til að taka við liðinu í sumar eftir uppsögn Ange Postecoglou. Gengi þeirra félaga var svipað; vel gekk í Evrópu en illa gekk heima fyrir. Tottenham hefur leitað bráðabirgðastjóra til að stýra liðinu út leiktíðina og Króatinn Igor Tudor var ráðinn til verksins. Sá hefur haft góð áhrif á mörg liða sem hann hefur stýrt í gegnum tíðina - til skamms tíma - en aldrei hefur honum tekist að festa sig í sessi sem þjálfari neins liðs. Síðast stýrði hann Juventus í sjö mánuði, Lazio í þrjá mánuði á undan því og Marseille í eina leiktíð þar á undan. Teddy Sheringham lék 177 leiki og skoraði 124 mörk með Tottenham frá 1992 til 1997 og milli 2001 og 2003. Honum líst hreint ekki vel á að fá Króatann til starfa. „Ég trúi þessu ekki. Þeir eru í fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni. Veit hann eitthvað um deildina? Hann mun þurfa að aðlagast hratt,“ „Þeir völdu þjálfara sem hefur ekki hugmynd um hverju hann á von á í ensku úrvalsdeildinni á næstu sex vikum. Hver tekur eiginlega þessar ákvarðanir? Það er ekki hægt að una við svona lagað,“ segir Sheringham um ráðninguna.
Tottenham Hotspur Enski boltinn Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Fleiri fréttir Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Sjá meira