Fékk „hjálp“ frá heilbrigðiseftirlitinu til að velja sig sjálfa Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 12. febrúar 2026 12:55 Móar stúdíó var til húsa í Bolholti í Reykjavík. Samsett/Vilhelm Lára Rúnarsdóttir, eigandi Móar stúdíó, hefur ákveðið að loka jóga-stúdíóinu í kjölfar þess að heilbrigðiseftirlitið stöðvaði starfsemina vegna tegundar leigurýmis. Hún segist líta á ágreining hennar við eftirlitið sem aðstoð við að velja sig sjálfa en finnur jafnframt fyrir sorg og söknuði. „
Móar kveðja í þeirri mynd sem það tók sér í fjögur og hálft ár. Móa-andinn er frjáls undan steypu og þungum rekstri, og ég finn hann glaðan og frjálsan. Hann vinnur nú án landamæra, hvert þangað sem hann er kallaður,“ segir Lára í færslu á samfélagsmiðlum. Tvær vikur eru síðan Lára deildi færslu á samfélagsmiðlum þar sem hún segist þurfa tímabundið að stöðva starfsemi Móa eftir aðkomu heilbrigðiseftirlitsins. Málið varðaði tegund leigurýmis en starfsemin er til húsa í Bolholti í Reykjavík. „Ég er nú að kanna möguleikann á að halda úti lágmarksstarfsemi í öðru rými eða færa kennslu yfir á netið,“ sagði hún þá. Finnur annan vettvang fyrir starfsemina Í gær greindi hún svo frá því að hún muni loka Móar stúdíó. „Ég finn sorg og söknuð - sem er ljúft að finna í brjóstinu. Þá veit ég að það sem við byggðum var einhvers virði. Stundum þarf ég að styðja mig við borð þegar öldur sorgar ferðast um mig. Ég leyfi því,“ segir hún. View this post on Instagram A post shared by MÓAR studio (@moar_studio_) „Ég fékk hjálp frá heilbrigðiseftirlitinu, þar sem ég mætti mótlæti sem ég átti ekki roð í, til þess að velja sjálfa mig.“ Lára gefur hins vegar í skyn að hún muni finna farveg fyrir starfsemina. „Draumurinn minn hefur alltaf verið að skapa rými sem er áfallamiðað og ber djúpa virðingu fyrir vegferð hvers og eins. Rými sem styður fólk til ábyrgðar á eigin lífi, þar sem allar tilfinningar eru velkomnar og við æfum okkur að ferðast frá drama og inn í upplifun á andartakinu nákvæmlega eins og það er. Það er svo mikill styrkur í því,“ segir hún. Lára vildi ekki tjá sig um málið við fréttastofu þegar leitast var eftir því.
Jóga Heilbrigðiseftirlit Reykjavík Líkamsræktarstöðvar Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Borgin afþakkar risaeðlubein Innlent Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Sjá meira