Að byrgja brunninn er ódýrara Elín Anna Baldursdóttir skrifar 11. febrúar 2026 10:16 Í grein sem ég birti í síðustu viku, Börnin sem bíða, var fjallað um bið barna eftir geðheilbrigðisþjónustu og þörf á breytingum þegar við kemur snemmtækri íhlutun. Sú bið er ekki aðeins tímabundin óþægindi heldur getur haft langvarandi áhrif á líf barna, fjölskyldna þeirra og samfélagið í heild. Í gær var birt frétt um nýja yfirlitsgrein þar sem fram kemur að á síðustu áratugum hafi hlutfall fólks með endurhæfingar- og örorkumat á vinnualdri aukist verulega á Íslandi, úr 6,3% árið 2000 í 9,4% árið 2024. Mest hafi fjölgað greiningum sem tengjast þunglyndi, kvíða, verkjavanda, ADHD og einhverfu. Það sem vekur sérstaka athygli er að margar þessara áskorana eiga rætur sínar í barnæsku eða á unglingsár. ADHD og einhverfa eru taugaþroskaraskanir sem koma fram snemma í lífi barna. Kvíði birtist oft í æsku og stór hluti þeirra sem glíma við kvíða síðar á lífsleiðinni finnur fyrst fyrir einkennum fyrir 12 ára aldur. Þunglyndi er sjaldgæfara í barnæsku en kemur oft fyrst fram á unglingsárum, þegar kröfur um félagslega og námslega aðlögun aukast. Þegar við horfum á þessar staðreyndir má draga þá ályktun að geðheilbrigðisvandi fullorðinna byrjar ekki á fullorðinsárum heldur í barnæsku. Snemmtæk íhlutun snýst ekki aðeins um að draga úr einkennum barna hér og nú heldur um að styrkja þroska, sjálfsmynd og færni áður en vandi verður langvinnur. Hún snýst líka um að styðja foreldra og skóla í að mæta þörfum barna á réttum tíma. Rannsóknir og reynsla fagfólks benda ítrekað til þess að því fyrr sem gripið er inn í, því meiri líkur eru á góðri þróun. Sum lönd hafa náð góðum árangri í þjónustu í geðheilbrigðismálum og fimm atriði einkenna þessa þjónustu. Þjónustan færð nær barninu. Stuðningur og ráðgjöf eru veitt í nærumhverfi barns, í hverfinu, leikskólum og skólum í stað þess að þurfa að fara í gegnum heilbrigðiskerfið og sérhæfð úrræði, með löngum biðlistum. Allar beiðnir fara á einn stað sem auðvelt er fyrir foreldra og/eða börn að leita til. Lágþröskuldaþjónusta styrkt. Lágþröskuldaþjónusta merkir að það sé einfalt að fá aðstoð snemma, án þess að þurfa tilvísun, greiningu eða langa bið. Markmiðið er að grípa inn í áður en vandinn stækkar. Foreldrar, börn og kennarar geta sjálf óskað eftir aðstoð, jafnvel áður en einkenni hafa náð klínískri greiningu eða greining taugaþroskafrávika hafa verið staðfest og boðið er upp á stutta meðferð/viðtöl, foreldraráðgjöf eða námskeið. Áhersla lögð á samstarf kerfa. Heilbrigðisþjónusta, skólar og félagsþjónusta vinna saman í stað þess að ábyrgðin dreifist milli stofnana. Ný lög um farsæld barna er skref í rétta átt en oft ströndum við þar sem fá úrræði eru í boði og biðin of löng. Markviss stuðningur við foreldra. Fræðsla og stuðningur við foreldra eru oft fyrsta skrefið í stað þess að bíða eftir greiningu barns. Sérstaklega hjá yngri börnum þar sem foreldrar eru í lykilhlutverki barnsins í daglegum athöfnum. Árangur metinn í rauntíma. Þjónustan er metin reglulega og úrræði aðlöguð að þörfum barna. Biðlistar mega ekki vera ,,ósýnilegir’’, við þurfum að vita hversu margir bíða, hversu löng biðin er, hvert innstreymi nýrra mála er og hver árangur inngripa er. Þá verður þetta ekki klínískt vandamál heldur rekstrarlegt, sem hægt er að greina og bregðast við. Hagfræðingar og sálfræðingar hafa bent á að fjárfesting í geðheilbrigðisþjónustu sé ein hagkvæmasta samfélagslega fjárfesting sem hægt er að ráðast í. Í svokallaðriDepression Reportí Bretlandi var sýnt fram á að aukið aðgengi að sálfræðimeðferð gæti skilað sér til baka í formi minni örorku og aukinnar atvinnuþátttöku. Það er því ekki hægt að horfa á bætta þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra sem útgjöld heldur fjárfestingu í framtíðinni. Börn bíða ekki bara eftir þjónustu, þau verða af mikilvægum tækifærum í þroska. Að byrgja brunninn áður en barnið dettur ofan í er því ekki bara betra heldur líka ódýrara. Höfundur er sálfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Geðheilbrigði Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar