Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Agnar Már Másson skrifar 10. febrúar 2026 20:26 Alls konar sjávarfangsúrgangur hefur skyndilega birst við Sólheimakot að Nesjavallaleið síðustu mánuði. Hundaeigendur hafa áhyggjur af dularfullum fiskúrgangi sem hefur verið fargað á útivistarsvæði í nágrenni við Sólheimakot í Mosfellsbæ, þar sem alls kyns sjávarfang, svo sem makríll og krabbar, hefur fundist í hrúgum. Einn hundur varð verulega veikur eftir að hafa komist í úldinn fisk á svæðinu.
Hundaeigandanum Sigríði Oddnýju Hrólfsdóttur brá í brún þegar hún tók hundinn út í göngutúr í nágrenni við Sólheimakot við Nesjavallaleið í Mosfellsbæ í gær. Þar blöstu við hrúgur af sjávarfangi á víð og dreif um svæðið, sem einhver virðist hafa skilið eftir í óleyfi. „Þetta eru bara hrúgur hingað og þangað,“ segir hún í samtali við Vísi. „Makríll sem búið var að kasta inn á milli trjáa og út í sinuna. Þetta er á mjög dreifðu svæði. Þetta eru krabbar, það er fiskur í saltpækli, það eru hauslausir makrílar. Það er einhvers konar síldarafurð þarna líka. Og svo er búið að hræra þetta saman í alls konar graut.“ Kæm ekki á óvart að dýrin dyttu niður dauð Sigríður segir að úrgangurinn hafi virst fremur ferskur og lýsir hún áhyggjum af því að sjáfangið kunni að reynast hundum baneitrað enda sé svæðið við Sólheimakot vel sótt af hundaeigendum og ekki síst Hundaræktarfélagi Íslands. „Hundar þola salt svo illa,“ segir hún. Blessunarlega hafi hennar tík ekki komist í úrganginn, en ljóst var að fuglar væru farnir að kroppa í fiskhræin. Myndir sem Sigríður Oddný Hrólfsdóttir tók í ferð sinni að Nesjavallaleið í gær.Facebook „Það sem er líka hættulegt er að það fara allir hrafnar í þetta, það fara tófur í þetta, það fara smáfuglar í þetta, og þetta er náttúrulega bara viðbjóður. Það kæmi ekkert á óvart að þessi dýr væru að detta niður dauð hingað og þangað.“ Þá lýsir Sóley einnig áhyggjum af því að mengun af úrganginum kunni að smitast í vatnsbólið í nágrenninu. „Ældi og ældi“ Þetta er ekki í fyrsta sinn sem dularfullur fiskúrgangur birtist skyndilega á útivistarsvæðinu. Í nóvember 2025 lenti Lísa María Karlsdóttir einmitt í því að hundur hennar veiktist eftir að hafa komist í hrúgur af fiski sem einhver virtist hafa skilið eftir við Nesjavallaleið. Fram að því hafi Lísa sótt svæðið að meðaltali fimm sinnum í viku, að eigin sögn, en hætti að fara eftir þetta. „Hún bara ældi og ældi,“ segir Lísa í samtali við Vísi. Hundurinn hafi auk þess orðið bólginn og maginn mjög útblásinn. Mynd sem Lísa tók af úrgangi á svæðinu í nóvember.Aðsend Hún segist hafa tilkynnt málið til MAST og Mosfellsbæjar og fengið þau svör frá bæjarfélaginu að málið yrði kannað. „Þetta hlýtur að vera frá einhverri útgerð eða einhverjum sem er að róa eða eitthvað,“ segir Lísa. „Mér finnst bara ekkert allt í lagi að fyrirtæki hendi einhverju svona út í náttúruna. Og af hverju þarna?“
Mosfellsbær Hundar Umhverfismál Gæludýr Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira