Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur Kjartan Kjartansson skrifar 11. febrúar 2026 06:47 Á ýmsu hefur gengið á skrifstofu Félagsbústaða undanfarin misseri. Starfsfólk lýsti yfir vantrausti á framkvæmdastjóra eftir að hann rak starfsmenn fyrir allra augum í fyrra. Vísir/Vilhelm Fimmtán starfsmenn Félagsbústaða, rúmur helmingur þeirra sem störfuðu fyrir stofnunina, hafa hætt störfum á einu og hálfu ári. Formaður stéttarfélags þeirra lýsir alvarlegum áhyggjum af stöðu mannauðsmála hjá stofnuninni.
Allt almennt starfsfólk á skrifstofu Félagsbústaða skrifaði undir yfirlýsingu þar sem það lýsti vantrausti á Sigrúnu Árnadóttur, framkvæmdastjóra, í febrúar í fyrra. Sakaði starfsfólkið Sigrúnu um „ógnarstjórn“ eftir að hún rak starfsmann fyrir allra augum á starfsmannafundi. Stjórn Félagsbústaða ákvað að halda Sigrúnu sem framkvæmdastjóra í maí. Það gerði hún eftir að sérfræðingar í vinnuvernd sem stjórnin kallaði til hefði komist að þeirri niðurstöðu að vantraust starfsfólk í garð Sigrúnar væri alvarlegt og að flest þeirra hefði sagst hafa orðið vitni að einelti eða ofbeldi á vinnustaðnum. Af 28 starfsmönnum sem voru fastráðnir hjá Félagsbústöðum árið 2024 eru fimmtán hættir af ýmsum ástæðum. Þetta kemur fram í bréfi sem Kári Sigurðsson, formaður stéttarfélagsins Sameykis, sendi stjórn Félagsbústaða, Heiðu Björg Hilmisdóttur, borgarstjóra og leiðtogum borgarstjórnarmeirihlutans í nóvember. Þörf á markvissari aðgerðum Kári segir einnig í bréfinu að félagið telji sig vita að fimm starfsmenn hafi verið í langtímaveikindaleyfi á sama tímabili og að fjórir þeirra hafi annað hvort sagt upp eða verið látnir fara. Stjórn Félagsbústaða brást við ágreiningi starfsfólks og framkvæmdastjóra með því að kalla til mannauðsfyrirtæki til að gera áhættugreiningu á vinnustaðnum. Kári segir í bréfinu að Sameyki sé meðvitað um að nokkrar úrbætur hafi verið gerðar. „Þrátt fyrir það teljum við stöðuna áfram mjög alvarlega og að þörf sé á markvissari og umfangsmeiri aðgerðum til að tryggja heilbrigt og stöðugt starfsumhverfi,“ segir í bréfinu. Kári Sigurðsson er formaður Sameykis. Hann vill að stjórn Félagsbústaða taki mannauðsmál á skrifstofu þeirra alvarlega. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem situr í stjórn Félagsbústaða bókaði að hann vildi að stjórnin fjallaði formlega um bréf formanns Sameykis á fundi hennar 27. nóvember. Stjórn Félagsbústaða virðist ekki hafa fundað síðan. Nýjasta fundargerð stjórnar á vefsíðu stofnunarinnar er frá fundinum í lok nóvember.
Reykjavík Húsnæðismál Félagsmál Stjórnsýsla Mannauðsmál Mest lesið Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Sjá meira