Vilja herða skilyrði fyrir sænskum ríkisborgararétti Kjartan Kjartansson skrifar 9. febrúar 2026 13:28 Johann Forssell, innflytjendamálaráðherra Svíþjóðar, segir tillögurnar um ríkisborgararétt sögulegar. Vísir/EPA Minnihlutastjórn Ulfs Kristersson ásamt Svíþjóðardemókrötum kynntu tillögur um að gera erlendum ríkisborgurum erfiðara fyrir að fá sænskan ríkisborgararétt í dag. Þeir þurfa meðal annars að hafa lifað „heiðvirðu lífi“.
Nái tillögurnar fram að ganga þurfa umsækjendur um sænskan ríkisborgararétt að hafa búið í landinu í átta ár í stað fimm áður. Þeir þurfa einnig að standast sérstakt próf, geta sýnt fram á að þeir geti framfleytt sér sjálfir og að þeir lifi „heiðvirðum lífsstíl“, að því er kemur fram í frétt sænska ríkisútvarpsins. Johan Forssell, innflytjendamálaráðherra, segir breytingarnar sögulegar. Þær eigi að taka gildi á þjóðhátíðardag Svía, 6. júní. „Það ætti að vera endapunkturinn á aðlögunarferli að verða ríkisborgari sem byggist verulega á manns eigin framlagi og vinnu,“ sagði Forssell í morgun. Á ríkisborgaraprófinu er lagt til að þekking á sænsku samfélagi og tungumáli verði könnuð. Ráðherrar vildu ekki segja hvers lags spurningar yrðu lagðar fyrir umsækjendur en prófið yrði í anda þeirra sem bandaríska og dönsk stjórnvöld setja sem skilyrði fyrir ríkisborgararétti. Talsmaður Svíþjóðardemókrata segir að auknar kröfur um heiðvirðan lífsstíl séu að finna í tillögunum. Þær séu umtalsvert strangari en þær sem áður hafa komið til tals. Herða löggjöfina undir þrýstingi frá fjarhægriflokkum Stjórnvöld í mörgum Evrópuríkjum bregðast nú við uppgangi fjarhægriflokka með því að herða aðgerðir í innflytjendamálum. Spænska ríkisstjórnin ákvað þó að fara þveröfuga leið á dögunum þegar hún kynnti áform sem gætu veitt allt að hálfri milljón manna sem dvelja ólöglega í landinu tímabundið dvalar- og atvinnuleyfi. Svíþjóðardemókratar, sem eru yst á hægri jaðri sænskra stjórnmála, eiga ekki formlegt sæti í ríkisstjórn heldur verja minnihlutastjórn falli samkvæmt samkomulagi sem gert var eftir síðustu kosningar og er kennt við Tidö-kastala þar sem leiðtogar fjögurra flokka handsöluðu það.
Svíþjóð Innflytjendamál Ríkisborgararéttur Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Fleiri fréttir Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Sjá meira