Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 9. febrúar 2026 10:36 Vilhjálmur og Katrín, prins og prinsessa af Wales. Getty/Samir Hussein Vilhjálmur prins af Wales og kona hans Katrín prinsessa eru sögð hafa miklar áhyggjur vegna nýjustu afhjúpana í tengslum bandaríska kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein.
Samkvæmt umfjöllun BBC segir talsmaður Kensington-hallar að prinsinn og prinsessuna af Wales hafi „djúpar áhyggjur“ af áframhaldandi uppljóstrunum í tengslum við málið og að hugur þeirra sé hjá fórnarlömbum. Þetta er í fyrsta sinn sem höllin tjáir sig um málið í framhaldi af því að nýjar upplýsingar voru gerðar opinberar með birtingu Epstein-skjalanna svokölluðu nýverið. Föðurbróðir Vilhjálms, Andrew Mountbatten-Windsor, áður Andrés prins, er einn þeirra sem hefur sætt gagnrýni fyrir tengsl sín við Epstein heitinn, en meðal þeirra gagna sem nýverið voru gerð opinber eru myndir þar sem sjá má Andrew krjúpa yfir ungri konu sem liggur á gólfinu. Ekki er minnst á Andrew í yfirlýsingu Kensington-hallar, en hún birtist á sama tíma og óttast er að skandalar sem tengjast prinsinum fyrrverandi kunni að varpa skugga á önnur störf konungsfjölskyldunnar eins og því er lýst í umfjöllun BBC. Vilhjálmur Bretaprins er á leið í opinbera heimsókn í Sádi-Arabíu, heimsókn sem þykir stór í diplómatísku samhengi. Á sama tíma og fregnir herma að Vilhjálmur hafi á undanförnum árum reynt að fjarlægjast „óþægilega frænda“ sínum þá hefur hann líkt og aðrir háttsettir meðlimir konungsfjölskyldunnar forðast að tjá sig opinberlega um ásakanir á hendur Andrew.
Bretland Mál Jeffrey Epstein Kóngafólk Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Fleiri fréttir Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Sjá meira