Prinsinum hafi verið hent út á miðnætti Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 8. febrúar 2026 15:47 Bresku götublöðin hafa farið mikinn í umfjöllun um mál prinsins. Ming Yeung/Getty Images Andrési Bretaprins var hent út af heimili sínu á miðnætti í vikunni og gert að flytja í annað húsnæði á vegum konungshallarinnar. Þetta fullyrða bresk götublöð en flutningarnir eru sagðir hafa átt sér stað aðfaranótt mánudagsins.
Breska götublaðið Daily Mail hefur eftir heimildarmanni að ákvörðunin um flutninga prinsins hafi verið tekin af bróður hans Karli Bretakonungi og af syni hans Vilhjálmi á sunnudagskvöld um að hann ætti að flytja sama kvöld. CNN greinir frá því að ákvörðunin hafi upphaflega verið tekin í október en að óljóst hafi verið hvenær hann ætti að flytja. Hann hafi flutt út um miðja nótt svo forðast mætti að vekja athygli. Nafn Andrésar er enn á ný í heimspressunni vegna nýjustu birtingu á skjala sem tengjast barnaníðingnum Jeffrey Epstein. Eitt fórnarlamba Epstein Virginia Guiffre hefur sakað prinsinn um að hafa brotið á sér þegar hún var á táningsaldri. Hann hefur ávallt neitað sök. Andrés, sem sviptur hefur verið flestum sínum titlum vegna málsins, hefur búið um árabil á sama heimili við Windsor kastala, hinu svokallaða Royal Lodge setri. Hann fær nú nýtt heimili við Sandringham höll konungsfjölskyldunnar í Norfolk. Hann eigi að fá sveitasetrið March Farm en sérfræðingurinn Andrew Lownie sem bandaríski slúðurmiðillinn Page Six ræðir við segir ekki loku fyrir það skotið að prinsinn verði sendur enn lengra í burtu í ljósi skandalsins. Í nýjasta bunka af skjölum sem birt hafa verið má sjá myndir af prinsinum þar sem hann krýpur yfir stúlku sem liggur á gólfi. Á einni þeirra snertir hann maga hennar og á annarri mitti hennar. Ekki hefur komið fram hvenær eða hvar myndirnar voru teknar. Myndirnar sem um ræðir.Bandaríska dómsmálaráðuneytið Þá er einnig að finna tölvupóstsamskipti á milli prinsins og Epstein frá 2010 þar sem Epstein býður honum að hitta „vinkonu“ sína. Prinsinn segist vera klár og svarar Epstein honum þá og segir um að ræða 26 ára gamla rússneska konu, sem sé „klár, falleg og traustsins verð.“
Bretland Kóngafólk Mál Andrésar prins Mál Jeffrey Epstein Karl III Bretakonungur Tengdar fréttir Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Enn fleiri af svokölluðum Epstein-skjölum hafa verið birt af dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna. Meðal gagnanna er tölvupóstur frá sem grunað er að sé frá Andrew Mountbatten-Windsor þar sem hann biður um „óviðeigandi vinkonur“. Þá kemur nafn Bandaríkjaforseta fyrir. 23. desember 2025 16:34 Andrew sviptur síðustu hernaðartigninni Varnarmálaráðuneyti Breta vinnur að því að svipta Andrew Mountbatten Windsor síðustu hernaðartign sinni. Andrew, sem var áður þekktur sem Andrés prins, var sviptur prins-titli sínum fyrr í vikunni. 2. nóvember 2025 13:20 Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Fleiri fréttir Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Sjá meira
Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Enn fleiri af svokölluðum Epstein-skjölum hafa verið birt af dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna. Meðal gagnanna er tölvupóstur frá sem grunað er að sé frá Andrew Mountbatten-Windsor þar sem hann biður um „óviðeigandi vinkonur“. Þá kemur nafn Bandaríkjaforseta fyrir. 23. desember 2025 16:34
Andrew sviptur síðustu hernaðartigninni Varnarmálaráðuneyti Breta vinnur að því að svipta Andrew Mountbatten Windsor síðustu hernaðartign sinni. Andrew, sem var áður þekktur sem Andrés prins, var sviptur prins-titli sínum fyrr í vikunni. 2. nóvember 2025 13:20