Hjörtun í vörn Íslands mættust ekki í kvöld Aron Guðmundsson skrifar 6. febrúar 2026 19:23 Ingibjörg kom engum vörnum við þegar Pernille Harder kom Bayern Munchen yfir í fyrri hálfleik. Vísir/Getty Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen áttu ekki í miklum vandræðum með Freiburg er liðin mættust í kvöld. Lokatölur 4-1 sigur Bayern.
Ingibjörg Sigurðardóttir var sem fyrr í hjarta varnarinnar hjá Freiburg sem var fyrir leikinn með 26 stig í 6.sæti deildarinnar á meðan að landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir var á meðal varamanna toppliðs Bayern og kom ekkert við sögu í kvöld. Það voru gestirnir frá Bæjaralandi sem komust yfir í leiknum með marki frá Pernille Harder á 27.mínútu. 0-1. Þannig stóðu leikar allt þar til í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegarað Lisa Kolb jafnaði metin fyrir Freiburg og stóðu leikar jafnir 1-1 þegar að flautað var til loka fyrri hálfleiks. Bayern hafði yfirburði í leiknum og það sást bersýnilega í seinni hálfleik þegar að liðið gekk á lagið og raðaði inn mörkum. Harder kom Bayern yfir í stöðuna 1-2 á 58.mínútu með sínu öðru marki í leiknum og á 75.mínútu bætti Edna Imade við þriðja marki liðsins. Það var síðan Linda Dallmann sem innsiglaði 1-4 sigur Bayern með marki á 79.mínútu. Sigur Bayern gerir það að verkum að liðið situr eitt á toppi deildarinnar með 46 stig og þægilega níu stiga forystu á Wolfsburg sem vermir 2.sætið en á leik til góða. Ingibjörg spilaði allan leikinn í kvöld og lið hennar Freiburg vermir eins og fyrr segir 6.sætið en hefur leikið tveimur leikum meira en liðin í kringum sig.
Þýski boltinn Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Enski boltinn Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Fleiri fréttir Júlíus sem klettur á miðjunni í mikilvægum sigri KR - ÍA | Mætast aðra umferðina í röð Stjarnan - ÍBV | Eyjamenn þurfa á stigum að halda Valur - Þór | Akureyringarnir berjast fyrir lífi sínu FH - KA | Bæði lið reyna að halda sér uppi Þróttarar brutu bikarinn Coventry - Brighton | Sækir Lampard sinn fyrsta sigur? Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs „Munum líklega svekkja okkur í dag og svo heldur lífið áfram“ „Höfðum engu að tapa um leið og þær komast í 1-0“ Stefán Ingi og Brynjólfur skiluðu sínu í hörkuleik Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Hjörtur og Kolbeinn unnu þriðja leikinn í röð Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Valshjartað slær enn hjá hetju KR Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Logi á skotskónum þrátt fyrir tap Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield KR upp í Bestu deildina Albert náði ekki að endurtaka góða innkomu Malmö í frábærum málum MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Hull enn taplaust í deildinni Sjá meira