ETS er ekki bilað, það er loksins farið að virka Eyþór Eðvarðsson skrifar 6. febrúar 2026 08:30 Innlegg í umræðu um hækkandi kostnað við losunarheimildir Undanfarið hafa birst fréttir og yfirlýsingar frá hagsmunaaðilum í atvinnulífinu um að kostnaður við kaup á losunarheimildum innan ETS-kerfisins (Emissions Trading System) muni margfaldast á næstu árum og verða íþyngjandi fyrir íslenskt atvinnulíf. Slík umræða er skiljanleg. Hækkandi kolefnisverð hefur raunveruleg áhrif á rekstur fyrirtækja. Lykilspurningin er þó ekki hvort ETS hafi áhrif, heldur hvort þau áhrif séu merki um kerfi í vanda eða einfaldlega merki um kerfi sem er loksins farið að virka eins og því var ætlað. Af hverju er ETS til? ETS varð ekki til af hugmyndafræðilegum duttlungum heldur vegna þess að loftslagsvandinn er farinn að valda verulegu efnahagslegu tjóni. Kostnaður þess að aðhafast ekki eykst með hverju árinu. Samkvæmt mati Evrópsku umhverfisstofnunarinnar (EEA) ollu loftslagstengdir öfgaveðuratburðir, svo sem hitabylgjur, þurrkar og flóð, um 6.500 milljörðum króna í efnahagslegu tjóni í Evrópusambandinu árið 2025 (miðað við gengi um 150 kr. á evru). Stofnunin varar jafnframt við því að slíkur árlegur kostnaður geti numið allt að 19.000 milljörðum króna fyrir lok áratugarins ef þróunin heldur áfram. Þetta eru ekki fjarlægar sviðsmyndir heldur kostnaður sem samfélög bera nú þegar. Í þessu samhengi er ETS eitt af lykilverkfærunum Evrópu til að bregðast við vandanum með skipulögðum og hagkvæmum hætti: með því að setja verð á losun gróðurhúsalofttegunda og færa kostnaðinn nær þeim ákvörðunum sem valda honum. Hvernig virkar ETS? ETS er markaðskerfi sem setur þak á heildarlosun gróðurhúsalofttegunda. Losunarheimildir eru gefnar út í samræmi við það þak og þeim fækkar markvisst með tímanum. Þegar framboð minnkar hækkar verð. Kerfið sendir þannig skýrt verðmerki: losun á að verða sífellt dýrari, en lausnir með minni eða engri losun verða sífellt samkeppnishæfari. Þetta er ekki galli kerfisins heldur meginhlutverk þess. Kerfi sem skilar árangri Tvö dæmi sýna vel að ETS hefur skilað raunverulegum árangri. Samkvæmt nýjustu gögnum Evrópsku umhverfisstofnunarinnar (EEA) hefur losun frá þeim geirum sem falla undir ETS dregist saman um 45–47% frá árinu 2005. Á sama tíma og efnahagsvöxtur hefur haldið áfram, samkvæmt gögnum EEA og evrópsku framkvæmdastjórnarinnar. Í öðru lagi hefur hækkandi kolefnisverð innan ETS gert kolaorku sífellt ósamkeppnishæfari víða í Evrópu og verið lykilþáttur í því að flýta fyrir lokun kolaorkuvera, meðal annars í Bretlandi og Þýskalandi, samkvæmt greiningum Alþjóðlegu orkustofnunarinnar (IEA) og opinberum gögnum breskra stjórnvalda. Fjárfestingar hafa færst frá mengandi lausnum yfir í hreinni valkosti. Það er nákvæmlega sú hegðunarbreyting sem ETS var hannað til að knýja fram. Hærra verð þrýstir á aðgerðir Hækkandi kostnaður við losunarheimildir er því ekki merki um kerfi í vanda heldur sjálft stýritækið. Ef losun væri áfram ódýr, væri hvati til orkuskipta veikur og loftslagsmarkmið lítið annað en orð á blaði. ETS var aldrei hugsað sem þægilegt kerfi fyrir rekstraraðila heldur sem skilvirkt tæki til umbreytingar. Mýtan um að Ísland standi sig vel Í íslenskri umræðu má oft heyra að Ísland sé ein „grænasta þjóðin“ og standi sig svo vel í loftslagsmálum að engin ástæða sé til að taka þátt í þessu „rugli“. Sú mynd stenst ekki skoðun. Ísland er með eina mestu losun gróðurhúsalofttegunda á hvern íbúa í heiminum. Enn alvarlegri er þróunin sjálf. Á meðan flestar Evrópuþjóðir hafa dregið verulega úr losun undanfarna áratugi hefur Ísland dregið lappirnar. Losun hér á landi hefur aukist um 6% frá 1990, á sama tíma og Bretar hafa dregið saman losun um nærri 50%, Svíar um tæp 39% og Danir um 46%, samkvæmt gögnum EEA og Eurostat. Engin þjóð innan Evrópusambandsins sýnir jafn slakan árangur þegar litið er til þróunar heildarlosunar frá 1990. Ruglingur um ríkisútgjöld Samhliða gagnrýni á ETS er oft vísað til „gríðarlegra útgjalda ríkisins til loftslagsmála“, gjarnan með vísan í 144 milljarða króna sem runnu til loftslagsmála á tímabilinu 2017-2024. Án skýrrar sundurliðunar er erfitt að meta í hvað fjármunirnir fóru og eðlilegt að margir upplifi óljós svör. Þar er þörf á auknu gagnsæi og skýrum svörum frá stjórnvöldum, en það er annað mál. ETS kerfið er hvorki ríkisrekstur né útgjaldakerfi heldur markaðskerfi sem stýrir hegðun með verðlagningu. Sanngjarnar áhyggjur um flug Það er skiljanlegt að flugrekendur hafi áhyggjur af samkeppnisstöðu evrópskra og íslenskra flugfélaga gagnvart flugfélögum utan ETS, einkum bandarískum. Flug innan ETS ber kolefniskostnað sem samkeppnisaðilar utan kerfisins bera ekki. Þetta er raunverulegt álitaefni sem kallar á pólitíska umræðu og lausnir. Í því samhengi ættu íslensk stjórnvöld frekar að setjast niður með Evrópusambandinu og ræða raunhæfar leiðir til að mæta þessum áskorunum en að sækja í sífellu um tímabundnar undanþágur sem skapa óvissu og draga úr samkeppnishæfni til lengri tíma. Raunverulega áhættan Stærsta áhættan fyrir íslenskt atvinnulíf er ekki ETS heldur að vera of seint á ferðinni í aðlögun að óhjákvæmilegum samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda. ETS er ekki refsing heldur aðvörun. Kerfið segir fyrirtækjum, stjórnvöldum og samfélögum að tíminn þar sem hægt var að menga án afleiðinga er liðinn. Þau sem bregðast snemma við fá svigrúm til nýsköpunar, aðlögunar og samkeppnisforskots. Þau sem bíða greiða síðar. Til að setja kostnað vegna ETS fyrir flugið í samhengi má búast við að kerfið hækki flugmiða á leiðinni Keflavík-London um 1.800-2.700 krónur á farþega. Það er svipuð upphæð og margir greiða fyrir kaffi og samloku á meðan beðið er eftir flugi. Höfundur er í loftslagshópnum París 1,5 sem berst fyrir því að Íslandi leggi sitt af mörkum til að takast á við loftslagsvandann. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eyþór Eðvarðsson Loftslagsmál Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar