Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Eiður Þór Árnason skrifar 5. febrúar 2026 19:08 Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Vísir/vilhelm Icelandair tapaði 1,2 milljörðum króna árið 2025 eftir skatta. Um er að ræða samdrátt frá fyrra ári þegar tap nam 2,8 milljörðum króna. Stjórnendur segja tekjur félagsins aldrei hafa verið hærri og þær aukist um 11 prósent milli ára í 223,6 milljarða.
Einnig hafi verið slegið met í sætanýtingu um borð í vélum Icelandair og farþegafjöldi farið í fyrsta sinn yfir fimm milljónir. Forstjóri segir rekstrarniðurstöðu 2025 ekki vera í takti við áætlanir í byrjun árs. Félagið sé á réttri leið en breytingar á rekstrarumhverfi hafi haft verulega neikvæð áhrif á afkomu Icelandair í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar. EBIT tap ársins nam 2,2 milljörðum króna og jókst um 289 milljónir króna frá árinu 2024. Á sama tíma lækkaði EBIT tap um 252 milljónir króna á fjórða ársfjórðungi 2024 samanborið við sama tímabil árið áður. Staða alþjóðamála haft áhrif „Umrót í alþjóðamálum leiddi til veikingar bandaríkjadals sem hafði bein áhrif á afkomuna og á eftirspurn til Íslands frá Norður-Ameríku, okkar stærsta markaði, sem og neikvæð áhrif á tekjumyndun á Atlantshafsmarkaðnum,“ segir Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair í tilkynningu. „Þá hafa launahækkanir á íslenskum vinnumarkaði verið langt umfram þá þróun sem við sjáum í nágrannalöndum okkar sem er mikil áskorun fyrir þjónustumiðaðar útflutningsgreinar sem eru að mestu með tekjur í erlendri mynt. Þar til viðbótar hafa umhverfisgjöld tvöfaldast á milli ára,“ bætir hann við. Vilji skila hagnaði á þessu ári Neikvæð gengisáhrif eru sögð nema 5,6 milljörðum króna á síðasta ári vegna veikingar bandaríkjadals. Fram kemur í uppgjörinu að lausafjárstaða Icelandair hafi batnað um 14 milljarða króna milli ára og verið 57,6 milljarðar króna í lok árs. „Með skýrum áherslum okkar í rekstrinum og frekari umbótaverkefnum þegar í pípunum erum við vel í stakk búin til að skila hagnaði á þessu ári og styrkja félagið til framtíðar því það er sannarlega komið að því að hluthafar Icelandair uppskeri eftir að hafa staðið með félaginu í mörg ár,“ segir Bogi. Fréttin hefur verið uppfærð.
Icelandair Uppgjör og ársreikningar Fréttir af flugi Kauphöllin Tengdar fréttir Icelandair setur nokkur met Icelandair hefur aldrei flutt fleiri farþega en á síðasta ári en í heildina var fjöldinn um 5,1 milljónu og er það átta prósentum meira en árið 2024. Þá var desember stærsti desembermánuðurinn í sögu Icelandair en þá flutti flugfélagið 344 þúsund farþega. 6. janúar 2026 09:05 Mest lesið Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Fleiri fréttir Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Sjá meira
Icelandair setur nokkur met Icelandair hefur aldrei flutt fleiri farþega en á síðasta ári en í heildina var fjöldinn um 5,1 milljónu og er það átta prósentum meira en árið 2024. Þá var desember stærsti desembermánuðurinn í sögu Icelandair en þá flutti flugfélagið 344 þúsund farþega. 6. janúar 2026 09:05