Allir leikskólastjórar hjá borginni segja þolinmæðina á þrotum Eiður Þór Árnason skrifar 4. febrúar 2026 15:27 Leikskólastjórar í Reykjavík krefjast aðgerða. Vísir/vilhelm Leikskólastjórar á öllum borgarreknum leikskólunum lýsa yfir verulegum áhyggjum af stöðu skólanna og gagnrýna borgaryfirvöld. Þeir krefjast aðgerða og lýsa yfir vonbrigðum með að ákveðið hafi verið að fresta gildistöku svokallaðar Reykjavíkurleiðar. Þolinmæðin sé á þrotum og skólastjórnendur treysti sér að óbreyttu ekki til að bera ábyrgð á þeirri stöðu sem uppi er innan skólanna. „
Leikskólastjórnendur í Reykjavík lýsa yfir áhyggjum af aðgerðarleysi borgaryfirvalda gagnvart langvarandi og vel þekktum vanda í starfsumhverfi leikskóla borgarinnar,“ segir í bréfi 63 leikskólastjóra til borgarstjóra og borgaryfirvalda. Afleiðingarnar séu alvarlegar og vandinn á leikskólunum magnist enn frekar. „Þrátt fyrir vel kynntar og tímasettar tillögur (svokölluð Reykjavíkurleið) og samráð við foreldra og hagsmunaaðila hefur ekkert gerst í því að bæta starfsumhverfi í leikskólum borgarinnar eftir innleiðingu á styttri vinnuviku. Til stóð að ákveðnum aðgerðum yrði hrint í framkvæmd um áramótin 2025/2026.“ Þann 4. desember hafi skólastjórnendum verið tilkynnt að umræddar tillögur myndu ekki taka gildi um áramót eins og áður hafði verði kynnt. „ Þessar fregnir voru mikil vonbrigði. Að auki jókst von- og trúleysi undirritaðra verulega. Okkur verður sífellt ljósara að skortur er á raunverulegum skilningi á nauðsyn þess að bæta starfsumhverfi í leikskólum Reykjavíkurborgar. Þær umbætur eru óaðskiljanleg forsenda þess að tryggja börnum faglegt, vandað og ekki síður öruggt námsumhverfi. Með hverjum deginum sem líður aukast efasemdir okkar um hvort borgaryfirvöld hyggist axla þá ábyrgð sem af því leiðir að ráðast ekki í nauðsynlegar aðgerðir.“ Afleiðingarnar séu þegar orðnar sýnilegar. „Við höfum horft upp á reynslumikla og metnaðarfulla leikskólastjóra, kennara og leiðbeinendur hverfa til annarra sveitarfélaga þar sem brugðist hefur verið hraðar og af meiri festu við áskorunum tengdum styttri vinnuviku. Á meðan Reykjavíkurborg dregur lappirnar í nauðsynlegum aðgerðum blasir við sú tilfinning að mikilvægi leikskólastarfs sé aðeins viðurkennt þegar það hentar pólitískri orðræðu, en víki til hliðar þegar raunveruleg ábyrgð og fjárfestingar er krafist,“ segir í bréfinu. „Þetta er ekki ábending, þetta er krafa um aðgerðir. Þolinmæði leikskólastjórnenda er á þrotum. Í góðri trú höfum við beðið og vænst úrbóta mun lengur en sanngjarnt getur talist. Um er að ræða nauðsynlegar breytingar fyrir þróun á faglegu og metnaðarfullu leikskólastarfi í Reykjavík. Við, leikskólastjórnendur, krefjumst þess að borgarstjóri og borgaryfirvöld Reykjavíkurborgar grípi tafarlaust til aðgerða. Við förum fram á tímasetta aðgerðaráætlun, sem staðið verður við, fyrir lok febrúarmánaðar 2026. Verði það ekki gert treysta leikskólastjórnendur sér ekki til að bera ábyrgð á þeirri stöðu sem uppi er.“ Reykjavíkurleiðin svokallaða hefur reynst umdeild en tillögurnar fela meðal annars í sér að foreldrar sem nýti ekki þjónustu á milli jóla og nýárs, í vetrarleyfum grunnskóla og í aðdraganda páska fái heilan mánuð ókeypis. Þá verður veittur afsláttur fyrir þá sem sækja börnin sín fyrir klukkan tvö á föstudögum. Á móti myndi kostnaður annarra foreldra hækka. Fréttin er í vinnslu og verður uppfærð.
Mest lesið Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent „Þetta er sárara en tárum taki“ Innlent Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Innlent Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Innlent Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Erlent Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Innlent Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Innlent Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Innlent Fleiri fréttir Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Ekkert bóli á sleggjunni að ári liðnu Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Sjá meira