Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Kjartan Kjartansson skrifar 4. febrúar 2026 13:58 Margrét Jónsdóttir Njarðvík er rektor Háskólans á Bifröst. Vísir/Sara Rektor Háskólans á Bifröst segist hafa fengið ábendingu um möguleg brot starfsmanna á höfundarrétti frá aðila sem nýtur nafnleyndar. Stjórn skólans ætlar að skipa óháðan utanaðkomandi aðila til þess að leiða sáttaferli innan skólans.
Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor á Bifröst, greinir frá þessu í tölvupósti sem hún sendi starfsmönnum og kennurum skólans í dag. Það kemur í kjölfar þess að Félag akademískra starfsmanna skólans lýsti yfir vantrausti á rektorinn og aðra stjórnendur vegna framgöngu þeirra gegn þremur starfsmönnum í tengslum við ábendingu til siðanefndar innan skólans. „Hér er um að ræða fyrsta mál sinnar tegundar, þar sem rektor fær ábendingu frá aðila sem nýtur nafnleyndar og viðkomandi felur rektor að taka málið áfram,“ skrifar Margrét í póstinum en hún hefur ekki veitt fjölmiðum viðtöl um deilurnar innan skólans til þessa. Hún hafi í kjölfarið fundað með deildarforseta viðskiptadeildar og rannsóknarstjóra og falið þeim að kanna hvort ábendingin væri tilhæfulaus. Stjórnendunir hafi unnið sína vinnu að hennar beiðni og af heilindum. „Fyrir það hafa þau legið undir ámæli opinberlega. Þau hafa virt þagnarskyldu sína og hafa því ekki haft tök á að verja faglegan heiður sinn. Ég hef tekið mjög nærri mér gagnrýnina í þeirra garð fyrir það að sinna starfi sínu,“ segir í bréfi rektorsins. Starfsmannafélagið hefur sakað stjórnendurna um að hafa byggt ályktanir sínar um hvort að þrír starfsmenn skólans hafi réttilega verið skráðir meðhöfundar að greinum á úttekt gervigreindarforrits. Kemur ekki sjálf nærri sáttaferlinu Stjórn Bifrastar er sögð hafa lýst fullum stuðningi við Margréti í tölvupóstinum. Hún hafi jafnframt ákveðið að skipa óháðan utanaðkomandi aðila til að leiða sáttaferli innan skólans og endurheimta traust meðal starfsmanna. Margrét segist ekki ætla að koma sjálf nálægt því ferli þrátt fyrir að í yfirlýsingu stjórnar hafi sagt að óháði aðilinn ætti að leiða það „ásamt rektor“. „Það mátti skilja sem svo að rektor, sem er aðili máls, verði í forsvari fyrir þá vinnu. Slíkt er ekki heppilegt og þess í stað vil ég taka þátt með sama hætti og annað starfsfólk. Ég hef því tilkynnt stjórn að ég óski eftir því að sú vinna sem tengist sáttaferlinu verði ekki á mínu forræði, heldur stjórnar.“ Utanaðkomandi aðilinn á að funda með öllum starfsmönnum í fámennum hópum. „Um ræðir fagfólk sem brátt verður kynnt til leiks. Þau verða kölluð að borðinu til að skapa vettvang fyrir heiðarlegt og opið samtal. Ráðning þessara sáttamiðlara verður á forræði stjórnar og í framhaldi af því verður haldinn starfsmannafundur.“ Fréttin verður uppfærð.
Háskólar Skóla- og menntamál Tengdar fréttir Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórn Félags akademískra starfsmanna Bifrastar (FAB) segir að stjórnendur bifrastar, þar með talið rektor, byggi á því fyrir stjórn skólans að ekki hafi verið staðið rétt að málunum á fundi félagsins á miðvikudag þegar vantrausti var lýst yfir á yfirstjórn skólans. FAB segir ekkert til í þeim málflutningi. 18. janúar 2026 15:57 Mikilvægt að vanda sig og beita varúð Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra segir mikilvægt að fara varlega með gervigreind í starfsemi háskóla í kjölfar frétta um að yfirstjórn Bifrastar hafi notað gervigreind til að meta höfundarstöðu þriggja starfsmanna skólans. 16. janúar 2026 12:44 Loðin svör gervigreindar sem brjóti gegn höfundarrétti: „Engin þakklæti til stofnunarinnar“ Persónuvernd hefur verið bent á vinnubrögð rektors Háskólans á Bifröst sem virðist hafa notað gervigreind til að rökstyðja ásakanir um að starfsmenn hafi merkt sig ranglega sem meðhöfunda fræðigreina. Erlendir meðhöfundar greinanna eru sagðir hafa staðfest þátttöku fræðimannanna frá Bifröst. 15. janúar 2026 22:02 Mest lesið Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent „Þetta er sárara en tárum taki“ Innlent Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Innlent Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Innlent Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Erlent Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Innlent Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Innlent Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Innlent Fleiri fréttir Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Sjá meira
Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórn Félags akademískra starfsmanna Bifrastar (FAB) segir að stjórnendur bifrastar, þar með talið rektor, byggi á því fyrir stjórn skólans að ekki hafi verið staðið rétt að málunum á fundi félagsins á miðvikudag þegar vantrausti var lýst yfir á yfirstjórn skólans. FAB segir ekkert til í þeim málflutningi. 18. janúar 2026 15:57
Mikilvægt að vanda sig og beita varúð Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra segir mikilvægt að fara varlega með gervigreind í starfsemi háskóla í kjölfar frétta um að yfirstjórn Bifrastar hafi notað gervigreind til að meta höfundarstöðu þriggja starfsmanna skólans. 16. janúar 2026 12:44
Loðin svör gervigreindar sem brjóti gegn höfundarrétti: „Engin þakklæti til stofnunarinnar“ Persónuvernd hefur verið bent á vinnubrögð rektors Háskólans á Bifröst sem virðist hafa notað gervigreind til að rökstyðja ásakanir um að starfsmenn hafi merkt sig ranglega sem meðhöfunda fræðigreina. Erlendir meðhöfundar greinanna eru sagðir hafa staðfest þátttöku fræðimannanna frá Bifröst. 15. janúar 2026 22:02