Deilur í Háskólanum á Bifröst

Fréttamynd

Stíga fram á Facebook, for­dæma rektor og segja nóg komið

Starfsmenn Háskólans á Bifröst segja allt loga stafnana á milli í skólanum; starfsumhverfið sé þrúgandi og réttlætiskennd fólks misboðið. Nokkrir hafa stigið fram á samfélagsmiðlum og tjáð sig um stöðu mála eftir að Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor háskólans, greindi frá því í tölvupósti í gær að mál sem nú er til meðferðar hefði hafist með ábendingu um möguleg brot starfsmanna á höfundarrétti frá aðila sem nýtur nafnleyndar.

Innlent
Fréttamynd

Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ó­tengdar sakir

Kennara við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst var sagt upp störfum í sömu viku og stjórnendur skólans báðu siðanefnd um að kanna störf hans en fyrir ótengdar sakir. Hann var sagður hafa brotið trúnað með því að kenna við annan háskóla.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert at­huga­vert við fundinn og stjórnin starfshæf

Stjórn Félags akademískra starfsmanna Bifrastar (FAB) segir að stjórnendur bifrastar, þar með talið rektor, byggi á því fyrir stjórn skólans að ekki hafi verið staðið rétt að málunum á fundi félagsins á miðvikudag þegar vantrausti var lýst yfir á yfirstjórn skólans. FAB segir ekkert til í þeim málflutningi.

Innlent
Fréttamynd

Mikil­vægt að vanda sig og beita var­úð

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra segir mikilvægt að fara varlega með gervigreind í starfsemi háskóla í kjölfar frétta um að yfirstjórn Bifrastar hafi notað gervigreind til að meta höfundarstöðu þriggja starfsmanna skólans.

Innlent
Fréttamynd

Akademískir starfs­menn lýsa yfir van­trausti á rektor

Félag akademískra starfsmanna við Háskólann á Bifröst (FAB) hefur lýst yfir vantrausti á stjórnsýslu rektors skólans, Margrétar Jónsdóttur Njarðvík. Félagið segir framgöngu rektors, deildarforseta viðskiptadeildar skólans og rannsóknarstjóra í kærumálum gegn þremur starfsmönnum hafa einkennst af ófaglegum vinnubrögðum. 

Innlent