Innlent

Kæra freyði­vínsviðburð með Lilju Al­freðs

Eiður Þór Árnason skrifar
Thea Rut Jónsdóttir, formaður Framsóknarfélags Akureyrar og nágrennis, segir málið ekki snúast um stuðning félagsins við einn eða annan frambjóðanda.
Thea Rut Jónsdóttir, formaður Framsóknarfélags Akureyrar og nágrennis, segir málið ekki snúast um stuðning félagsins við einn eða annan frambjóðanda. Samsett/aðsend

Framsóknarfélag Akureyrar og nágrennis kærði í morgun til siðanefndar flokksins viðburð sem kvennahreyfing Framsóknar hefur boðað með Lilju Alfreðsdóttur, frambjóðenda til formanns. Fundurinn fer fram nokkrum dögum áður en flokksþing Framsóknar hefst.

Akureyri.net greinir frá þessu en Thea Rut Jónsdóttir, formaður Framsóknarfélags Akureyrar og nágrennis staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður og þingmaður Framsóknar í Norðausturkjördæmi sækist einnig eftir því að leiða flokkinn. 

Thea segir það skipta máli í þessu samhengi að skipuleggjandi viðburðarins með Lilju sé landssamband innan Framsóknar. „Því fannst okkur þetta örlítið alvarlegra en ella.“

Hún segir stjórn Framsóknarfélagsins á Akureyri telja þetta brjóta í bága við siðareglur flokksins og þá helst grein um hlutlægni sem inniheldur eftirfarandi: „Óheimilt er að misnota stöðu í eigin þágu eða annarra. Kjörnir fulltrúar, eiga í hvívetna að gæta þess að fara vel með hlutverk sitt.“

Í færslu sem Konur í Framsókn deila á Facebook er viðburðurinn með Lilju auglýstur með eftirfarandi hætti: „Hlökkum til að sjá ykkur í Fantasíu á Vinnustofu Kjarvals þriðjudaginn 10. febrúar. Staðan í alþjóðamálum og hér á norðurslóðum rædd. Hver er staða Íslands og hvar er okkur best borgið í breyttri heimsmynd? Kalt og freyðandi á meðan birgðir endast og Happy Hour tilboð á barnum.“

„Þau eru ekki að spila leikinn eins og á að spila leikinn. Ef þessi viðburður hefði verið helgina eftir flokksþing eða í mars eða bara hvenær sem er, þá hefði enginn sagt neitt við þessu,“ segir Thea.

Gæta verði jafnræðis milli frambjóðenda til formanns. Þá sé mikilvægt að flokkurinn standi saman og allir geti unnið saman eftir kosningar.

„Það er svona pínu verið að troða fólki í einhverjar fylkingar sem er ekki sniðugt. Og hvort sem ég styð Ingibjörgu eða ekki, þá er þetta bara prinsipp. Við brjótum ekki siðareglur.“

Fréttin er í vinnslu og verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×