Innlent

Breytingar hjá Við­reisn eftir af­sögn Guð­brands

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Sigurjón tekur við stöðu framkvæmdastjóra og Emilía kemur inn í hans stað sem lögfræðingur þingflokksins.
Sigurjón tekur við stöðu framkvæmdastjóra og Emilía kemur inn í hans stað sem lögfræðingur þingflokksins. Samsett/Aðsend

Sigurjón Njarðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar. Í hans stað hefur Emilía Björt Írisardóttir Bachmann verið ráðin.

Starfsmenn þingflokks Viðreisnar eru fjórir talsins en fyrir eru Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir og Pétur Björgin Sveinsson að störfum. 

Emilía Björt er með BA-gráðu í bæði stjórnmálafræði og lögfræði auk Mag. Jur.-gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands. Samkvæmt tilkynningu frá flokknum hefur hún áður starfað sem framkvæmdastjóri Landssamtaka íslenskra stúdenta og á skrifstofu jafnréttismála í dómsmálaráðuneytinu. 

Hún hefur sinnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Viðreisn og var varaforseti Uppreisnar auk þess sem hún sat í stjórn Reykjavíkurráðs Viðreisnar. 

Sigurjón hefur starfað sem lögfræðingur þingflokksins síðastliðið ár en starfaði áður hjá Orkustofnun og Matvælastofnun. Hann hefur einnig sinnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Viðreisn, til að mynda uppstillingu í sveitarstjórnarkosningum og kosningastjórn í Suðurkjördæmi. Hann er með BA-gráðu og ML-gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands.

Sandra Sigurðardóttir tók við stöðu framkvæmdastjóra í október 2025 en hún var varaþingmaður flokksins. Hún tekur við sem þingmaður í Suðurkjördæmi eftir afsögn Guðbrands Einarssonar eftir að upp komst um tilraun hans til vændiskaupa.


Tengdar fréttir

Eftirmaður Guðbrands í sjokki en klár í slaginn

Sandra Sigurðardóttir varaþingmaður Viðreisnar sem nú tekur við þingsæti Guðbrands Einarssonar í Suðurkjördæmi segist vera í sjokki vegna málsins. Ákvörðunin hjá Guðbrandi um að segja af sér vegna tilraunar til vændiskaupa sé hinsvegar hárrétt og segist Sandra vera klár í slaginn á Alþingi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×