Körfubolti

Ekkert lát á sigur­göngu Tryggva og fé­laga

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Tryggvi Snær Hlinason skilaði sínu í kvöld.
Tryggvi Snær Hlinason skilaði sínu í kvöld. getty/Alberto Gardin

Bilbao Basket, sem landsliðsmiðherjinn Tryggvi Snær Hlinason leikur með, bar sigurorð af Joventut Badalona, 80-76, í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Þetta var fimmti sigur Bilbæinga í röð en þeir eru í 9. sæti deildarinnar með tuttugu stig.

Tryggvi lék í 26 mínútur, skoraði sex stig, tók níu fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Hann tók flest fráköst allra á vellinum.

Í 4. leikhluta var eins og það væri lok á körfunum en liðin skoruðu þá aðeins nítján stig samtals.

Joventut Badalona minnkaði muninn í eitt stig, 77-76, en Bilbao Basket tryggði sér sigurinn með því að skora síðustu þrjú stig leiksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×