„Keyrðu yfir okkur og við leyfðum því bara að gerast“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 30. janúar 2026 21:20 Arnar Guðjónsson hefur áhyggjur af frammistöðu liðsins. vísir/Anton Tindastóll tapaði með 38 stiga mun gegn Stjörnunni í kvöld, 125-87. Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls, fór ekki leynt með það að hann hafi áhyggjur af frammistöðu liðsins í síðustu tveimur leikjum í deildinni. „
Mér fannst svolítil uppgjöf í þessu hjá okkur, þetta voru bara vonbrigði. Frammistaðan léleg og andleysi í okkur“, sagði Arnar eftir tap liðsins. Tindastóll tapaði gegn Keflavík í síðustu umferð og talaði Arnar þá um eftir leikinn að liðið hefði ekki verið nógu beitt, byrjað leikinn illa og eftir það elt allan leikinn. Það má segja að það hafi verið svipað uppi á teningnum í kvöld. „Þetta var í raun og veru framhald af frammistöðunni gegn Keflavík, Stjarnan gekk á lagið og keyrðu yfir okkur og við leyfðum því bara að gerast.“ Félagaskiptaglugginn lokar annað kvöld á miðnætti og það er spurning hvort Tindastóll muni gera einhverjar breytingar á liði sínu, eða eins og Arnar segir að hrista upp í hlutunum. „Við þurfum að hrista okkur saman og hrista upp í hlutunum. Við verðum að vera með meiri árásargirni og áræðni í því sem við gerum, ég held það gefi auga leið. Það er risa leikur á þriðjudaginn og við þurfum núna að fara að setja saman alvöru frammistöðu.“ Hefurðu einhverjar áhyggjur af þessum frammistöðum liðsins? „Jájá, þetta starf er þannig að þú hefur alltaf áhyggjur... já ég hef áhyggjur af þessari frammistöðu.“
Tindastóll Bónus-deild karla Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Fleiri fréttir Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Sjá meira