Tennisstjörnurnar fela hluti í nærfötunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. janúar 2026 06:30 Aryna Sabalenka er ein af þeim tennisstjörnum sem spila í þessum ólöglegu nærfötum. Getty/Robert Prange Opna ástralska meistaramótið í tennis stendur nú yfir og klæðnaður nokkurra af stjörnum mótsins hefur kallað á aðgerðir hjá mótshöldurum.
Margar af stærstu tennisstjörnum heims hafa nefnilega orðið sér út um sérsaumuð nærföt en það gerir íþróttafólkið til þess að þær geti blekkt mótshaldara með bönnuðum mælitækjum. Framleiðandi heilsufarsmæla hefur sent sérsaumuð nærföt á nokkur af stóru nöfnunum í miðju fyrsta risamóti ársins. Aftonbladet segir frá. @Sportbladet Carlos Alcaraz, Jannik Sinner og Aryna Sabalenka eru meðal þeirra leikmanna sem spila reglulega með búnaðinn en hefur nú verið sagt að taka hann af sér. Undir svitabandinu Spænski heimsmeistarinn Carlos Alcaraz faldi meira að segja mæli undir svitabandinu sínu en dómarinn uppgötvaði það. Á Opna ástralska er ekki leyfilegt að spila með mæla fyrir líkamleg hreystigildi. Í nótt mun framleiðandinn hafa sent sendingu með sérsaumuðum boxer-nærbuxum, brjóstahöldurum og nærfötum. Erfiðara að finna þá Þau eiga að gefa möguleika á að fela skynjara svo erfiðara sé að uppgötva þá. Eina mótaðgerð mótshaldara væri að láta leikmenn afklæðast fyrir líkamsleit. Forstjóri og stofnandi fyrirtækisins WHOOP, Will Ahmed, hefur tjáð sig í myndbandi á samfélagsmiðlum. „Þetta er gríðarlegt hneyksli á Opna ástralska. Þeir hafa sagt að bestu tennisleikarar heims megi ekki bera mælana sína í leikjum. Þetta er í beinni andstöðu við Alþjóða tennissambandið, sem segir að það megi bera þá í leikjum og að það sé óhætt að gera það. Að lokum erum við hér til að vernda hagsmuni leikmanna og rétt þeirra til að skilja heilsu sína og frammistöðu,“ sagði Will Ahmed. Þetta er bara til að fylgjast með heilsunni minni Hvítrússneski heimsmeistarinn Aryna Sabalenka segist vera ringluð yfir skilaboðunum frá Opna ástralska. „Ástæðan fyrir því að ég bar hann á vellinum var sú að við fengum tölvupóst um að við hefðum fengið samþykki frá ITF (Alþjóða tennissambandinu) til að nota þetta tæki. Ég vissi ekki að risamótin hefðu komist að annarri niðurstöðu. Ég skil ekki af hverju, því allt árið notum við þau á WTA-mótum. Á öllum mótum sem ég spila notum við tækin. Þetta er bara til að fylgjast með heilsunni minni,“ sagði Aryna Sabalenka. Í yfirlýsingu frá ástralska tennissambandinu segja það að leikmenn geti fengið aðgang að svipuðum gögnum annars staðar, í gegnum fyrirtækið sem Opna ástralska notar fyrir rafræna heilsufarsmæla.
Tennis Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Vikings er eina ósigraða liðið Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Jökull sagður á leið til Blika sem standa á tímamótum Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Sjá meira