Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 24. janúar 2026 16:07 Donald Trump Bandaríkjaforseti. EPA Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað að setja hundrað prósenta toll á vörur frá Kanada ef forsætisráðherra Kanada undirritar viðskiptasamning við Kína. „
Ef að Kanada gerir samning við Kína verður þegar í stað lagður 100% tollur á allar kanadískar vörur og afurðir sem koma til Bandaríkjanna,“ skrifaði Trump á Truth Social, samfélagsmiðilinn sinn. Stutt er síðan Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, og Xi Jinping, forseti Kína, funduðu og tilkynntu að þeir hefðu náð saman um viðskiptasamning milli ríkjanna tveggja. Samkvæmt BBC sagði Trump þá að samningurinn væri „góður hlutur“ en virðist nú hafa skipt um skoðun. Það gerist í kjölfar eldræðu sem Carney flutti á efnahagsráðstefnunni í Davos í vikunni. Þar varaði hann við því að heimurinn væri staddur í miðjum umbrotum þar sem stórveldi hafi vopnavætt viðskipti og tolla og misnoti efnahagslega innviði sem kúgunartæki. Í færslu Trumps vísar hann einnig í Carney sem ríkisstjóra (e. governor) en ekki forsætisráðherra. Þegar hann tók við völdum sem forseti fyrir ári síðan ítrekaði hann vilja sinn um að Kanada yrði 51. ríki Bandaríkjanna. „Ef Carney ríkisstjóri heldur að hann geti gert Kanada að „losunarhöfn“ fyrir Kína til að senda vörur og afurðir til Bandaríkjanna, þá skjátlast honum. Kína mun gleypa Kanada með húð og hári, gjörsamlega éta það, þar með talið eyðileggingu á fyrirtækjum þeirra, félagsgerð og almennum lífsháttum,“ skrifar Trump.
Bandaríkin Kanada Kína Skattar, tollar og gjöld Donald Trump Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fleiri fréttir Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Sjá meira