Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 22. janúar 2026 13:01 Elissa mætti fyrir dóm. Vísir/Anton Brink „Þetta var síðasta úrræðið sem við gátum gripið til,“ sagði Elissa Philipps sem ákærð er fyrir húsbrot og að fylgja ekki fyrirmælum lögreglu er hún dvaldi í hvalveiðiskipi 33 klukkustundir til að mótmæla hvalveiðum.
Atvikið átti sér stað 4. september 2023 þegar Elissa og Anahita Sahar Babaei fóru upp í tunnur í hvalveiðiskipunum Hvalur 8 og 9 til að mótmæla hvalveiðum. Málið er tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur og lýsir Elissa því fyrir dómnum að hún hafi gengið yfir Hval 9 til að komast í Hval 8 og klifrað þar upp mastrið. Dagana áður hafði hún mótmælt á höfninni og séð fjölda fara um borð í skipinu, bæði starfsfólk en einnig mótmælendur sem héldu á borða. Því hafi hún talið að ekki væri um lögbrot að ræða. Afþakkaði boð lögreglunnar Anahita var fyrst í skýrslustöku og tók Elissa undir orð hennar að þær hefðu ekki fengið nein skýr fyrirmæli frá lögreglu um að þær ættu að yfirgefa bátana. „Það voru engin samskipti því þeir voru langt í burtu. Á einum tímapunkti voru þeir að reyna að taka eigur Anahitu af henni, þá kallaði slökkviliðsmaður til mín „þú ert næst“ og ég held hann hafi sagt líka „veistu ekki hver á þennan bát? þú ert komin í vandræði,“ segir Elissa. Annar lögreglumaður hafi komið til hennar og hann boðið henni að fara niður, sem hún afþakkaði. Lögreglan hafi fyrst og fremst verið að athuga hvort að þær tvær væru öruggar. Vissi að það yrðu afleiðingar Lögreglumaðurinn sem ræddi við Elissu kom einnig fyrir dóm og þar sagðist hann hafa gert grein fyrir því að hún væri þarna í leyfisleysi og að framkvæma húsbrot. Elissa hafi skilið að hún væri þarna í leyfisleiti að hans mati. Verjandi Elissu segir að miðað við upptökur af vettvangi hafi hún ekki fengið nein fyrirmæli. Lögreglumaðurinn segist hafa lýst því fyrir henni að hún hafi verið í tunnunni í leyfisleysi. Hann tekur fram að Elissa hafi verið afar kurteis allan tímann og þau hefðu getað talað saman. Elissa segist vita að það yrðu einhverjar afleiðingar af málinu en hafði ekki gert sér grein fyrir því að málið myndi taka svo langan tíma.
Mótmæli í tunnum Hvals 8 og 9 Hvalveiðar Dómsmál Hafnarmál Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira