Telur Trump gera mistök Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 20. janúar 2026 22:54 „Þegar vinir takast í hendur verður það að hafa einhverja þýðingu,“ segir Ursula von der Leyen um tollahótanir Trump en Bandaríkin og ESB undirrituðu viðskiptasamning í sumar. EPA Grænlenska landsstjórnin telur ólíklegt að Bandaríkjamenn beiti hervaldi til að leggja Grænland undir sig. Þjóðin þurfi þó að vera undirbúin fyrir óvæntar vendingar í samvinnu við aðrar þjóðir. Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins segir hótanir Bandaríkjanna um tolla á lönd sem styðja Grænland, mistök.
Grænlenska landsstjórnin hélt blaðamannafund í dag vegna stöðunnar sem upp er komin vegna áforma Bandaríkjaforseta um að yfirtaka landið. „Það er ekki sennilegt að hervaldi verði beitt en við verðum að vera vakandi og viðbúin öllum mögulegum aðstæðum,“ sagði Muté B. Egede fjármálaráðherra Grænlands á fundinum. Donald Trump Bandaríkjaforseti fór enn og aftur mikinn í morgun um fyrirætlanir sínar um að taka yfir landið. Á samfélagsmiðli sínum Truth Social birti hann gervigreindarmynd þar sem sjá má hann, varaforseta og utanríkisráðherra landsins nema land á Grænlandi. Þá birti hann skjáskot af sem hann segir að séu frá Mark Rutte framkvæmdastjóra Nató þar sem kemur fram að Rutte ætli að vekja athygli á framlagi Trump á Gasa og í Úkraínu og sé staðráðinn í að finna leið áfram varðandi Grænland. Hótanir Trump hafa sett svip sinn á umræður á fundi Alþjóðaefnahagsráðsins sem hófst í Davos í Sviss í gær. Von er á að Trump ávarpi þjóðarleiðtoga þar á morgun. Hann hótaði á blaðamannafundi í síðustu viku að Bandaríkin muni setja refsitolla á þau lönd sem reyni að koma í veg fyrir yfirtöku Grænlands. Óásættanlegt Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, lagði áherslu á að slíkir tollar mættu ekki verða að veruleika í efa í ávarpi sínu á fundinum í Davos í dag. „Og þess vegna eru boðaðir viðbótartollar mistök, sérstaklega á milli gamalla bandamanna. Evrópusambandið og Bandaríkin samþykktu viðskiptasamning í júlí síðastliðnum. Og í stjórnmálum, eins og í viðskiptum, er samningur samningur. Og þegar vinir takast í hendur verður það að hafa einhverja þýðingu,“ sagði von der Leyen. 65 Þjóðarleiðtogar taka þátt í fundinum í Davos en íslensk stjórnvöld eru ekki með fulltrúa þar. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir afstöðu sína varðandi fyrirætlanir Trump skýra. „Ég hef sagt það og segi það áfram, þessi framganga Bandaríkjaforseta er óásættanleg.“ Kristrún segist ekki hafa fengið nein skilaboð um að Bandaríkjastjórn ætli að leggja frekari tolla á Ísland vegna afstöðu stjórnvalda til málsins. „Við höfum ekki fengið nein sérstök skilaboð hvað það varðar. Mér sýnist að upphafsviðbrögðin, að minnsta kosti hvað varðar tollana, hafi snúið að þeim löndum sem hafi sent einhvern mannskap til Grænlands í tengslum við ákveðnar æfingar. Ísland visulega sendi mannskap þangað en það er auðvitað í borgaralegum tilgangi.“
Bandaríkin Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Evrópusambandið Skattar, tollar og gjöld Grænland Donald Trump Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent „Noregur sökkar“ Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira