Yfirmaður Jóns Dags í stríði við lögreglu Ágúst Orri Arnarson skrifar 19. janúar 2026 17:02 Fabian Drescher fetar nýjar slóðir í forsetastarfinu hjá Hertha Berlin. Andreas Gora/picture alliance via Getty Images Mikil slagsmál brutust út milli lögreglunnar í Þýskalandi og stuðningsmanna Hertha Berlin, liðsins sem landsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson spilar með, þegar liðið tók á móti toppliðinu Schalke í þýsku B-deildinni um helgina. Forseti Hertha Berlin skilur hlið stuðningsmannanna vel, enda var hann sjálfur einn af þeim.
Samkvæmt lögreglu réðust stuðningsmenn á lögregluþjóna við störf á Ólympíuleikvanginum í Berlín, nánar tiltekið við austurinnganginn þar sem öfgastuðningsmennirnir, svokallaðir „Ultras“ ganga inn. 21 lögregluþjónn og 31 stuðningsmaður slasaðist í átökunum. Stuðningsmennirnir ákváðu svo að sniðganga leikinn og skilja eftir sig skilaboðin „ACAB“ sem stendur fyrir „All Cops Are Bastards“ eða „Allar löggur eru skíthælar.“ Ultra stuðningsmennirnir fóru og skildu eftir sig skilaboð. Þetta er alls ekki óþekkt úr fótboltaheiminum og margoft hafa stuðningsmenn lent í átökum við lögreglu, en sjaldan eða aldrei hafa stjórnendur félagsins staðið með stuðningsmönnum í svoleiðis stríði. Það gerir forseti Hertha Berlin hins vegar. „Undanfarna mánuði hafa stuðningsmenn okkar upplifað störf lögregluþjónana þannig að þeir séu að espa upp átök, frekar en að draga úr þeim. Hertha BSC er sammála þeirri upplifun“ sagði forsetinn samkvæmt Bild. Fabian Drescher er núverandi forseti en hann er fyrrum ársmiðahafi í austurstúkunni og þekkir því vel til þess sem þar fer fram. Hann tók við stöðunni af Kay Bernstein, sem féll óvænt frá árið 2024. Kay Bernstein var fyrsti forsetinn hjá félagi í Þýskalandi sem hafði áður tilheyrt öfgastuðningsmannahópi og vakti mikla athygli fyrir það. Sigur hans í forsetakjörinu hjá Hertha BSC árið 2022 var álitinn mikill sigur fyrir stuðningsmenn og undir hans stjórn innleiddi félagið nýja stefnu, sem sneri að því að efla grasrótina og leita aftur í gömlu hefðirnar hjá félaginu.
Þýski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Sjá meira