Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 18. janúar 2026 12:37 Trump tók vel í gjörning Machado. Getty Nóbelsnefnd friðarverðlaunanna hefur gefið út yfirlýsingu vegna framsals Maríu Corinu Machado verðlaunahafa á medalíu sinni til Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Yfirlýsingin er stutt og afdráttarlaus og segir nefndin að verðlaunin séu verðlaunahafans eins, burtséð frá því hvar peningurinn sé niðurkominn.
María Corina Machado hlaut friðarverðlaunin á síðasta ári fyrir baráttu gegn harðræði Nicolás Maduro í Venesúela. Hún var umtöluð sem líklegasti arftaki Maduro tækist að velta honum af stóli en Donald Trump virtist lítið gefa lítið fyrir leiðtogahæfni hennar eftir að Bandaríkjaher tók Maduro fastan í upphafi árs. Hún fagnaði aðgerðum Bandaríkjahers ákaft og tilraunir hennar til að skjalla Bandaríkjaforseta keyrðu svo um þverbak þegar hún fór á fund forsetans í Hvíta húsinu og afhenti honum verðlaunapening sinn. Nóbelsnefndin gaf í dag út yfirlýsingu þar sem hún tekur afstöðu sína til slíks framsals verðlaunapeninga skýrt fram. „Verðlaunahafi getur hvorki deilt verðlaununum með öðrum né framselt það eftir að tilkynnt hefur verið um hver hlýtur verðlaunin. Friðarverðlaun Nóbels geta sömuleiðis aldrei verið afturkölluð. Ákvörðunin er endanleg og gildir til frambúðar,“ segir nefndin. Ekki er vísað til Machado með beinum hætti en nefndin segist ekki líta svo á að það sé hlutverk hennar að taka þátt í umræðum um verðlaunahafa eða pólitískum athöfnum þeirra. Tekið er fram að Nóbelsnefndin ábyrgist ekki ummæli eða aðgerðir verðlaunahafa. Í yfirlýsingunni eru tíunduð nokkur dæmi um það að medalíur hafi verið gefnar í gegnum söguna. Minnisverðast er eflaust þegar norski rithöfundurinn Knut Hamsun gaf Jósef Göbbels, áróðursráðherra Hitlers, nóbelsverðlaunapening sinn árið 1943. „Göbbels þakkaði fyrir heiðurinn. Ekki er vitað hvar sú medalía er niðurkomin,“ segir nefndin.
Donald Trump Nóbelsverðlaun Noregur Bandaríkin Íhlutun Bandaríkjanna í Venesúela Venesúela Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira