Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Tómas Arnar Þorláksson skrifar 17. janúar 2026 15:48 Kílómetragjaldið tók gildi um áramótin. vísir/anton brink Álagning olíufélaganna hefur aldrei verið hærri en núna. Eldsneytisverð lækkaði um tæplega 97 krónur við ármótin þegar kílómetragjaldið tók gildi sem er í samræmi við væntingar Alþýðusambandsins. Eldsneytisverð hefði þó mátt lækka enn frekar að mati ASÍ.
Þetta segir Róbert Farestveit, sviðsstjóri hagfræði- og greiningarsviðs ASÍ, í samtali við fréttastofu. „Ef við horfum yfir olíuverðið yfir lengri tíma, óháð þessum breytingum, sjáum við vísbendingar um það að álagningin hafi aukist undanfarin ár eftir að hafa lækkað á tímabilinu 2018 til 2021,“ segir Róbert sem tekur fram að álagningin hafi ekki tekið kipp við það að kílómetragjaldið tók gildi heldur hafi álagningin verið að aukast jafnt og þétt. „Á síðustu misserum hefur heimsmarkaðsverð lækkað og verið hagfelld þróun þar á. Gengi krónunnar á tímabili var líka að styrkjast þó nokkuð. Yfir lengra tímabil hafa þessar breytingar ekki skilað sér í lækkun á smásöluverðinu.“ Hann segir að miðað við þessar forsendur ætti álagningin í raun að lækka og smásöluverð að lækka en það hefur ekki verið þróunin. „Við fylgjumst náið með þessu. Vísbendingar út frá þeim gögnum sem við erum að skoða benda til þess að olíuverð gæti verið enn lægra en það er núna. Miðað við þróun á heimsmarkaði og þróun á gengi krónunnar þá teldum við að það væri innistæða fyrir meiri lækkunum en sem nemur gjaldabreytingum sem urðu um áramótin.“ Samkvæmt nýrri samantekt ASÍ leiðir breytingin með kílómetragjaldinu til hærri rekstrarkostnaðar smærri og sparneyttari bifreiða á sama tíma og það dregur úr kostnaði stærri bifreiða. „Það eru ólík sjónarmið sem snúa að þessu. Við höfum gagnrýnt að rekstrarkostnaður aukist hjá smærri og sparneyttari bílum. Við töldum forsendur fyrir því að hafa fleirri gjaldaþrep og að allir bílar undir þrjú og hálfu tonni væru ekki í sama gjaldþrepi,“ segir Róbert sem tekur fram að skynsamlegt hefði verið að hafa hvata til að vera á sparneyttari bílum. Núverandi kerfi ívilni eyðslumeiri bílum.
Kílómetragjald Verðlag Bensín og olía Neytendur ASÍ Mest lesið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Samstarf Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Viðskipti erlent Fleiri fréttir Breytingin auki hvorki traust né öryggi á leigubílamarkaði Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Ein og hálf milljón í sekt vegna villandi auglýsinga Bílstólarnir gagnlausir ef þeir eru vitlaust festir Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Fjölga verslunum í Danaveldinu Innkalla ungbarnakex vegna aðskotahluta Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Sjá meira