Hækkum endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu iðnaðarmanna Jón Sigurðsson og Pétur H. Halldórsson skrifa 12. janúar 2026 12:45 Meistaradeild Samtaka iðnaðarins telur nauðsynlegt að bregðast við aukinni eftirspurn eftir svartri atvinnustarfsemi og vill koma á framfæri skýru ákalli til stjórnvalda um að hækka hlutfall endurgreiðslu virðisaukaskatts til að styðja við heilbrigðari starfsumhverfi í mannvirkjagerð. Með því að hækka endurgreiðsluna munu stjórnvöld bæta skattheimtu af greininni og um leið auka neytendavernd á markaðnum. Áður hefur þessi leið sýnt góðan árangur sem hefur margþætt jákvæð áhrif fyrir mismunandi hagaðila á markaði og aukna fagmennsku. Mikill ávinningur fyrir samfélagið ef stjórnvöld hækka endurgreiðslu virðisaukaskatts aftur í 100% Endurgreiðsla virðisaukaskatts vegna vinnu manna á verkstað lækkaði nánast fyrirvaralaust 1. júlí 2023 í 35% og hefur staðið þar óbreytt til dagsins í dag. Lækkun á endurgreiðslu hafði óneitanleg í för með sér óvænta og umtalsverða hækkun á byggingarkostnaði á sama tíma og stjórnvöld kölluðu eftir hagkvæmri húsnæðisuppbyggingu frá iðnaðinum. Í dag er staðan sú að endurgreiðslan vegur mun minna en áður á móti kostnaði. Samhliða því hafa aðrar álögur í byggingariðnaði, t.d. byggingarréttargjöld og gatnagerðargjöld, hækkað verulega og sum langt umfram byggingarvísitölu, en nýleg greining SI fjallar ítarlega um það. Samhliða hækkun á húsnæðisverði hefur arðsemi fyrirtækja í húsnæðisuppbyggingu minnkað, en hagnaður greinarinnar var 6,2% af tekjum í fyrra samanborið við 7,3% í viðskiptahagkerfinu. Árið 2022 var hagnaðarhlutfallið 10,5% og hefur þannig lækkað umtalsvert, meðal annars vegna mikillar hækkunar á gjaldtöku sveitarfélaga. Þessi staða dregur mikið úr hvata til húsbyggingar á tímum þar sem þörf er á mikilli uppbyggingu og hagkvæmu húsnæði. Við upptöku virðisaukaskattskerfisins árið 1988 var gerð sú veigamikla breyting að virðisaukaskattur lagðist á vinnu iðnaðarmanna á byggingarstað sem hækkaði byggingarkostnað á einu bretti um 5-7%. Löggjafanum var ljóst að nauðsynlegt væri að ráðast í sérstakar aðgerðir til að vega upp á móti þessari hækkun til að tryggja að húsbyggjendur myndu ekki skaðast af álagningu virðisaukaskattsins. Á þeim tíma var stjórnvöldum ljóst að breytingar á gjaldtöku gætu haft alvarlegar afleiðingar á byggingarkostnað og ýta undir hækkun húsnæðisverðs. Því var ákveðið að sá tekjuauki sem af þessu leiddi skyldi renna óskiptur aftur til húsbyggjenda, með endurgreiðslu á vinnulið iðnaðarmanna á verkstað. Hagur stjórnvalda af 100% endurgreiðslu virðisaukaskatts á viðhald Þá hefur endurgreiðsla virðisaukaskatts vegna vinnu iðnaðarmanna við viðhald fasteigna reynst áhrifaríkt tæki fyrir stjórnvöld til að sporna gegn svartri atvinnustarfsemi og auka skatttekjur ríkisins til lengri tíma. Reynslan sýnir að þegar endurgreiðslan var 100% nutu bæði neytendur, fyrirtæki og samfélagið allt ávinningsins. Þegar full endurgreiðsla var í gildi voru neytendur mun líklegri til að nýta sér úrræðið og kaupa þjónustu löglegra aðila. Með því var dregið úr hvata til að eiga viðskipti utan kerfisins og jafnframt stutt við einyrkja og minni fyrirtæki sem starfa fyrst og fremst við viðhald. Á þessum markaði eru faglærðir iðnaðarmenn oft í samkeppni við réttindalausa aðila og svarta atvinnustarfsemi, þar sem hagur neytenda er fyrir borð borinn. Endurgreiðsluátakið dregur í eðli sínu úr slíkum viðskiptaháttum og styður við fyrirtæki sem starfa eftir lögum og reglum og greiða skatta til samfélagsins. Í skýrslu starfshóps um umfang skattaundanskota og tillögur til aðgerða frá árinu 2017 kemur fram að af þeim málum sem hafa komið inn á borð ríkisskattstjóra og skattrannsóknarstjóra hafi skattaundanskot verið hvað algengust í byggingariðnaði. Átakið Allir vinna, sem stóð yfir á árunum 2009–2015, hafði hins vegar mælanlega jákvæð áhrif á skattaskil í greininni og þar með tekjur ríkissjóðs. Í þessu samhengi benti Skúli Eggert Þórðarson, þáverandi ríkisskattstjóri, á að með því að gefa vinnu ekki upp kæmi kaupandi sér hjá því að greiða virðisaukaskatt og seljandi gæti jafnframt komist hjá því að gera söluna upp til tekjuskatts. Þegar endurgreiðslan er 100% hverfur hins vegar ávinningur kaupanda af því að vera í viðskiptum utan kerfisins. Afleiðingin er aukin skráning viðskipta og þar með bætt tekjuskatts- og virðisaukaskattsskil greinarinnar. Í ársbyrjun 2015 var endurgreiðsla virðisaukaskatts vegna vinnu iðnaðarmanna lækkuð úr 100% í 60%, eftir að Allir vinna átakið hafði verið í gildi frá árinu 2009. Ári síðar, árið 2016, fór að bera á auknu skattaundanskoti í byggingariðnaði. Þá fækkaði umsóknum um endurgreiðslu um tæp 60% á sama tíma og umsvif í byggingariðnaði jukust verulega. Þessi þróun bendir skýrt til þess að lægra endurgreiðsluhlutfall dragi úr þátttöku í kerfinu og ýti undir óskráða starfsemi. Í umræðum á Alþingi 1. febrúar 2016 um skatteftirlit og skattrannsóknir tók Bjarni Benediktsson, þáverandi fjármálaráðherra, sérstaklega fram að afleiðingar af niðurfellingu átaksins hefðu verið neikvæðar og virtust ekki hafa gefið góða raun. Engin ástæða er til að ætla að áhrifin verði önnur nú þegar endurgreiðslan er mun lægri. Að lokum Takmarkaður ávinningur af endurgreiðslu virðisaukaskatts ýtir undir svarta atvinnustarfsemi sem er raunveruleg og vaxandi ógn við öryggi, gæði og traust í mannvirkjaiðnaði. Neytendur verða sífellt oftar fyrir barðinu á aðilum sem hvorki standa við ábyrgð né uppfylla gæðakröfur. Félagsmenn í Meistaradeild Samtaka iðnaðarins finna fyrir þessum áhrifum daglega og þurfa í auknum mæli að bregðast við afleiðingum ófaglegra vinnubragða. Með því að hækka endurgreiðslu virðisaukaskatts á viðhald aftur í 100% geta stjórnvöld gripið til markvissrar aðgerðar sem styður við löglega starfsemi, bætir skattskil, verndar neytendur og styrkir fagmennsku í byggingariðnaði. Það er ekki aðeins hagur greinarinnar, heldur hagur samfélagsins alls. Við hvetjum því stjórnvöld til að hækka endurgreiðslu virðisaukaskatts á vinnu iðnaðarmanna á verkstað án frekari tafa. Jón er formaður Meistaradeildar Samtaka iðnaðarins og Pétur er varaformaður Meistaradeildar Samtaka iðnaðarins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skattar, tollar og gjöld Byggingariðnaður Mest lesið Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Stokkið á (barna)vagninn Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Ábyrgðin er okkar allra Valdimar Víðisson Skoðun Að þora að spyrja og þola svarið Katrín Þrastardóttir Skoðun Opnum Skálafell Valdimar Breiðfjörð Birgisson Skoðun Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga Njáll Trausti Friðbertsson Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason Skoðun Hvar á gervigreind að vinna fyrir hið opinbera? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Skoðun Skoðun Bætir tækni í kennslustofunni nám? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin alls staðar Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Helmingsafsláttur af mennskunni Arndís Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Hvað borga ferðamenn fyrir nýtingu náttúru og innviða? Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Fjölmiðlakreppan: Lýðræðishalli en ekki bara rekstrarvandi Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun The EU’s reduced attractiveness for prosperous countries Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Ábyrgðin er okkar allra Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Hvar á gervigreind að vinna fyrir hið opinbera? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Virðismiðuð velferðarþjónusta Finnur Pálmi Magnússon skrifar Skoðun Skuldadagar í Reykjavík Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Að þora að spyrja og þola svarið Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Um fitulag og burðarvirki – atlaga að velferð barna og unglinga í Reykjavík Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Stokkið á (barna)vagninn Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Opnum Skálafell Valdimar Breiðfjörð Birgisson skrifar Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Um fitulag og burðarvirki – atlaga að velferð barna og unglinga í Reykjavík Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar
Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun