Græðir milljón á dag með nýjum samningi Sindri Sverrisson skrifar 10. janúar 2026 08:00 Luke Littler getur ekki kvartað yfir peningamálum eftir tímamótasamning sem hann hefur nú gert við Target. Getty/Warren Little Tvöfaldi heimsmeistarinn í pílukasti, Luke Littler, verður aðeins 19 ára síðar í þessum mánuði en þarf engar áhyggjur að hafa af peningum og hefur nú skrifað undir metsamning.
Littler vann afar sannfærandi sigur á nýafstöðnu heimsmeistaramóti í Alexandra Palace og er óumdeilanlega fremsti pílukastari heims í dag þrátt fyrir ungan aldur. Nú hefur hann skrifað undir styrktarsamning sem sagður er færa honum 20 milljónir punda, eða jafnvirði 3,4 milljarða króna. Þessa stjarnfræðilegu upphæð fær Littler í gegnum nýjan samning við Target Darts, sem gildir til næstu tíu ára. Píluframleiðandinn segir að um sé að ræða stærsta samning í sögu pílukasts, á milli fyrirtækis og íþróttamanns. Samningurinn færir Littler um það bil 340 milljónir króna á ári að meðaltali, eða hátt í eina milljón króna á dag. Littler hafði áður fengið eina milljón punda, eða um 170 milljónir króna, fyrir að vinna heimsmeistaramótið. „Target hefur haft trú á mér frá fyrsta degi,“ sagði Littler eftir nýja samninginn en Target sér einnig um umboðsmennsku fyrir hann. „Allt frá ferli mínum sem pílukastari og að vöruúrvali mínu þá höfum við byggt allt upp saman og ég er mjög spenntur yfir því að tryggja samstarf okkar til langs tíma og sjá hvert við förum næst,“ sagði Littler en pílur, píluspjöld og treyjur merktar honum eru í sölu hjá Target.
Pílukast Mest lesið Fékk rautt fyrir að klípa í klofið Fótbolti Afar vandræðalegt viðtal við Tudor: „Erum við búnir eða ekki?“ Enski boltinn Carragher brjálaður: „Létu Tottenham líta út fyrir að vera fínt lið“ Enski boltinn Sjáðu Richarlison refsa Liverpool og Bruno nálgast metið Enski boltinn Almar og Friðrik Leó með í Marsfárinu Körfubolti VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Handbolti Sló í fugl en það dugði ekki til Golf Ótrúleg staða hjá Bayern: Allir markverðirnir meiddir Fótbolti Sjáðu Sveindísi stinga af og leggja upp Fótbolti Chelsea hlaut bann og þunga sekt eftir ólöglegar leynigreiðslur Enski boltinn Fleiri fréttir „Þeir eru líka að skíta á sig“ Bayern þarf að sækja um útivistarleyfi fyrir markmanninn Besta sætið: Verðandi meistarar eða meiðslapésar? Júlía og Christina fara á sitt fyrsta HM Stjörnurnar með Madrídingum til Manchester Chelsea hlaut bann og þunga sekt eftir ólöglegar leynigreiðslur Fyrsta þjálfarastarfið á Ítalíu Cecilía hélt hreinu í fjarveru Karólínu Fernandes einn af örfáum sem kæmist í gullaldarlið United Jafnar árangur Federer og Djokovic Sjáðu Sveindísi stinga af og leggja upp Almar og Friðrik Leó með í Marsfárinu Ísak dró sig úr hópnum gegn Svíum VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Ómetanlegt fyrir nýliða að hafa þessa bræður Ter Stegen fékk ekki að kjósa Sjáðu Richarlison refsa Liverpool og Bruno nálgast metið Fékk rautt fyrir að klípa í klofið Sló í fugl en það dugði ekki til Matthías skráði nýjan kafla í skíðasöguna Afar vandræðalegt viðtal við Tudor: „Erum við búnir eða ekki?“ Dagskráin í dag: Vinna Úlfarnir þriðja leikinn í röð? Carragher brjálaður: „Létu Tottenham líta út fyrir að vera fínt lið“ Åberg spilaði rassinn úr buxunum og Young vann Players Ótrúleg staða hjá Bayern: Allir markverðirnir meiddir Hákon markahæstur hjá Lille í deildinni Rooney vill að Carrick fái starfið: „Vissi að þetta myndi gerast“ Logi skoraði sigurmark í uppbótartíma „Ef við höldum svona áfram verðum við sáttir með að komast í Sambandsdeildina“ Viggó og Andri fengu skell gegn meisturunum Sjá meira