Tíu Malímenn lentu undir en unnu samt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. janúar 2026 23:19 El Bilal Toure fagnar gríðarlega eftir að hafa skorað úr síðustu vítaspyrnunni og tryggt Malí sæti í átta liða úrslitum. EPA/JALAL MORCHIDI Tíu leikmenn Malí létu liðsmuninn ekki á sig fá og komust áfram í átta liða úrslit Afríkukeppninnar í kvöld með 3-2 sigri á Túnis í vítaspyrnukeppni.
Malí lék manni færri frá 26. mínútu eftir að Woyo Coulibaly fór með takkana hátt í Hannibal Mejbri og fékk beint rautt spjald. Liðsmunurinn gaf Túnis fulla stjórn á boltanum en þeir sköpuðu sér sáralítið fyrir framan markið. Löng bið eftir marki bar loks árangur. Mínútu fyrir lok venjulegs leiktíma kom Firas Chaouat Túnis yfir með skalla eftir fyrirgjöf Elias Saad. Malí hafði aðeins nokkrar mínútur til að svara en fékk tækifærið sem þeir þurftu þegar vítaspyrna var dæmd á síðustu sekúndunum fyrir hendi Yassine Meriah. Lassine Sinayoko steig fram og skoraði fram hjá Aymen Dahmen til að tryggja framlengingu. Þar var ekki skorað mark. Í fyrsta sinn á þessari Afríkukeppni var gripið til vítaspyrnukeppni og liðin skiptust á að skora og klúðra í fyrstu fjórum spyrnunum. Þá varði Djigui Diarra stórkostlega, í annað sinn í keppninni, frá Mohamed Ali Ben Romdhane áður en El Bilal Touré skoraði úr fimmtu spyrnu Malí og tryggði þeim sæti í átta liða úrslitum gegn Senegal. Túnis er úr leik í þessari Afrikukeppni en mun taka þátt í heimsmeistaramótinu næsta sumar.
Afríkukeppnin í fótbolta Malí Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjá meira