Eldgosið sem lýsti upp næturhiminninn og lamaði Evrópu Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 4. janúar 2026 09:02 Eldgos í Eyjafjallajökli í apríl 2010. Eldingar myndast inni í þéttum öskumökki sem rís upp frá gígnum. Vísir/Vilhelm Óhætt er að fullyrða að enginn einn atburður í sögunni hafi gert garð Íslands eins og frægan og eldgosið í Eyjafjallajökli árið 2010. Öskugosið í toppgígnum ógnaði sveitabyggðinni við rætur fjallsins og raskaði flugumferð í Evrópu vikum saman. En gosið var jafnframt mikið sjónarspil, eins og sést á meðfylgjandi myndum sem teknar voru af Vilhelm Gunnarssyni, ljósmyndara Vísis, nokkrum dögum eftir að sprengigos hófst undir jökli í Eyjafjallajökli sjálfum. „
Ég ákvað einu sinni sem oftar að renna austur eftir vaktina og sjá hvað væri að gerast í gosinu. Þegar það fór að dimma þá fór að bera á eldingunum og úr varð myndrænasta kvöldið í Eyjafjalla og Fimmvörðuhálsgosunum. Það var soldið happdrætti að ná myndum af eldingunum enda birtast þær ekki allveg eftir pöntun,“ rifjar Vilhelm upp. Gosið hófst 20. mars með kvikurennsli á Fimmvörðuhálsi, austan við jökulinn. Það gos var tiltölulega lítið og olli takmörkuðum raski. Að morgni 14. apríl breyttist staðan hins vegar verulega þegar sprengigos hófst undir jökli Eyjafjallajökuls. Kvikan komst í snertingu við jökulís, sem leiddi til mikillar öskumyndunar og öflugrar gosvirkni. Goseldingar lýsa upp skýið og gefa til kynna mikla öskulosun.Vísir/Vilhelm Gosmökkurinn náði allt að átta til tíu kílómetra hæð og fíngerð aska barst hratt með vindum til Evrópu. Þegar kvika komst í snertingu við ís jókst sprengivirkni gossins verulega.Vísir/Vilhelm Afleiðingarnar létu ekki á sér standa. Vegna hættu fyrir flugvélar var stórum hluta evrópska loftrýmisins lokað tímabundið. Tugþúsundir fluga féllu niður og milljónir farþega urðu strandaglópar víða um álfuna. Askan rís hátt í lofthjúpinn og berst með vindum yfir stór landsvæði. Gosmökkurinn hafði veruleg áhrif á flugumferð í Evrópu.Vísir/Vilhelm Á Íslandi sjálfu varð askufall á Suðurlandi, einkum í nágrenni gossins. Búfé þurfti að flytja, landbúnaður raskaðist og íbúar bjuggu við óvissu um heilsufarsleg áhrif öskufallsins. Elding myndast innan í öskuskýinu. Slík fyrirbæri eru algeng í sprengigosum með mikilli rafhleðslu. Þessi mynd Vilhelms var valin Umhverfismynd ársins 2010.Vísir/Vilhelm Samhliða þessu fylgdist almenningur náið með framvindunni, bæði vegna sjónræns umfangs gossins og þeirra fordæmalausu afleiðinga sem það hafði utan landsteinanna. Jökulbrún Eyjafjallajökuls í forgrunni og gosmökkur með eldingum fyrir ofan. Myndir af þessu tagi vöktu mikla alþjóðlega athygli vorið 2010.Vísir/Vilhelm Gosinu lauk formlega 22. maí 2010 eftir nær tveggja mánaða virkni. Eldingarnar undirstrika rafvirkni gossins.Vísir/Vilhelm Eyjafjallajökull varð í kjölfarið táknrænn fyrir það hvernig tiltölulega lítið eldfjall getur haft veruleg áhrif á hnattrænt samfélag.
Einu sinni var... Eldgos og jarðhræringar Ljósmyndun Myndasögur Vilhelms Tengdar fréttir Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Mikill harmleikur átti sér stað í ágústmánuði árið 2007 þegar tveir þýskir ferðamenn týndust á Svínafellsjökli. Í fimm daga stóðu yfir umfangsmiklar aðgerðir þar sem á þriðja hundrað björgunarsveitarmanna leituðu mannanna, en án árangurs. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, fylgdi björgunarsveitarmönnunum eftir á fjórða og fimmta degi leitarinnar, í stórbrotnu umhverfi Svínafellsjökuls. 21. desember 2025 10:01 Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Seint í nóvember árið 2004 átti sér stað einhver mesti bruni sem orðið hafði á höfuðborgarsvæðinu í áratugi. Þá kviknaði í gríðarlegum dekkja- og spilliefnahaug á athafnasvæði förgunarfyrirtækisins Hringrásar við Sundahöfn. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, var á svæðinu þessa nótt og festi á filmu baráttu slökkviliðsmannanna við eldinn. 14. desember 2025 08:00 Skelfing greip um sig þegar björgunarbátnum hvolfdi Aðfaranótt 19. desember 2006 strandaði flutningaskipið Wilson Muuga við Hvalsnes sunnan við Sandgerði. Skipið, sem var alls 5700 lestir, var að koma frá Grundartanga á leið til Murmansk eftir að hafa losað kvarts. 7. desember 2025 08:03 Hvorki síldarævintýri né gervigreind Það mætti halda að myndin hér að ofan væri unnin af gervigreind en ekki tekin af ljósmyndara Fréttablaðsins og Vísis snemma árs 2013. Þá varð sá fordæmalausi atburður að ríflega 35 þúsund tonn af síld drápust í Kolgrafafirði. Ástæðan var súrefnisþurrð. Fullur fjörður af síld en alls enginn ævintýrabragur. 30. nóvember 2025 08:01 Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Britney farin í meðferð Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Fleiri fréttir Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Sjá meira
Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Mikill harmleikur átti sér stað í ágústmánuði árið 2007 þegar tveir þýskir ferðamenn týndust á Svínafellsjökli. Í fimm daga stóðu yfir umfangsmiklar aðgerðir þar sem á þriðja hundrað björgunarsveitarmanna leituðu mannanna, en án árangurs. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, fylgdi björgunarsveitarmönnunum eftir á fjórða og fimmta degi leitarinnar, í stórbrotnu umhverfi Svínafellsjökuls. 21. desember 2025 10:01
Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Seint í nóvember árið 2004 átti sér stað einhver mesti bruni sem orðið hafði á höfuðborgarsvæðinu í áratugi. Þá kviknaði í gríðarlegum dekkja- og spilliefnahaug á athafnasvæði förgunarfyrirtækisins Hringrásar við Sundahöfn. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, var á svæðinu þessa nótt og festi á filmu baráttu slökkviliðsmannanna við eldinn. 14. desember 2025 08:00
Skelfing greip um sig þegar björgunarbátnum hvolfdi Aðfaranótt 19. desember 2006 strandaði flutningaskipið Wilson Muuga við Hvalsnes sunnan við Sandgerði. Skipið, sem var alls 5700 lestir, var að koma frá Grundartanga á leið til Murmansk eftir að hafa losað kvarts. 7. desember 2025 08:03
Hvorki síldarævintýri né gervigreind Það mætti halda að myndin hér að ofan væri unnin af gervigreind en ekki tekin af ljósmyndara Fréttablaðsins og Vísis snemma árs 2013. Þá varð sá fordæmalausi atburður að ríflega 35 þúsund tonn af síld drápust í Kolgrafafirði. Ástæðan var súrefnisþurrð. Fullur fjörður af síld en alls enginn ævintýrabragur. 30. nóvember 2025 08:01