Sádar sprengja hergögn frá furstadæmunum í Jemen og hóta frekari árásum Samúel Karl Ólason skrifar 30. desember 2025 09:41 Skjáskot úr drónamyndbandi sem sýnir hergögn flutt úr skipi í Jemen. AP/Ríkisútvarp Sádi-Arabíu Her Sádi-Arabíu gerði í morgun loftárásir á höfnina í Mukalla í Jemen sem sagðar eru hafa beinst að vopnasendingum frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Ráðamenn í Sádi-Arabíu vöruðu í kjölfarið furstadæmin við því að aðgerðir þeirra og stuðningur við vopnaðan hóp sem kallast STC væri einkar hættulegur.
Í yfirlýsingu frá utanríkisráðuneyti Sádi-Arabíu eru leiðtogar furstadæmanna hvattir til að flytja allar sínar sveitir frá Jemen innan sólarhrings og hætta stuðningi við STC. Þar segir að umsvif furstadæmanna í Jemen ógni fullveldi ríkisins og öryggi Sádi-Arabíu og brugðist verði við þeirri ógn, verði þörf þar á. Ekki er vitað hvort mannfall hafi orðið en takmarkaðar upplýsingar um árásirnar sjálfar í morgun liggja fyrir en myndband sem hefur verið í dreifingu á netinu sýnir brynvörðum farartækjum sem talin eru koma frá Furstadæmunum á götum Mukalla. Dozens of new UAE armored vehicles were spotted in Al-Mukalla, Hadramout, backing STC forces. They appear unaffected by the recent strike on the port.Source: Ali Al-Sakani pic.twitter.com/0xK3WlGONE— Clash Report (@clashreport) December 30, 2025 Meðlimir STC hafa sótt fram gegn stjórnarher Jemen í suðurhluta landsins, með stuðningi frá Abu Dhabi. Leiðtogar STC vilja stofna eigið ríki í Aden-héraði í Jemen en Suður-Jemen var ríki frá 1967 til 1990. Sádar hafa í meira en áratug stutt ríkisstjórn Jemen gegn uppreisnarmönnum Húta í vesturhluta landsins. Hútar hafa notið stuðnings frá Íran. Þetta er í annað sinn á einni viku sem Sádar gera árásir gegn STC. Í frétt Wall Street Journal er haft eftir embættismönnum í Sádi-Arabíu að furstadæmin hafi sent hergögn um borð í tveimur skipum. Um hafi verið að ræða vopn og brynvarin farartæki. Síðast gerðu Sádar árásir gegn STC á föstudaginn en það var í kjölfar þess að konungsríkið krafðist þess að leiðtogar STC flyttu sveitir sínar frá Hadramout-héraði í Jemen, sem liggur að landamærum Sádi-Arabíu. Sádi-Arabía og furstadæmin hafa lengi verið bandamenn en ríkin hafa stutt andstæðar fylkingar í bæði Jemen og Súdan á undanförnum árum. Furstadæmin hafa um nokkurt skeið stutt vígamenn Rapid Support Forces í Súdan, sem hafa barist gegn stjórnarhernum þar í landi í blóðugri borgarastyrjöld.
Jemen Sádi-Arabía Sameinuðu arabísku furstadæmin Hernaður Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira