Umkringdu Taívan og æfðu lokanir hafna Hólmfríður Gísladóttir skrifar 29. desember 2025 07:48 Kínverjar við æfingar. Myndin er frá því í nóvember síðastliðnum. Getty/CFOTO/Future Publishing Kínverjar standa nú í umfangsmiklum heræfingum umhverfis Taívan, þar sem þeir líkja eftir lokunum helstu hafna, árásum á skotmörk á sjó og vörnum gegn inngripum þriðju aðila. Yfirvöld í Kína segja um að ræða viðvörun til „aðskilnaðarsinna“ í Taívan.
Hermálayfirvöld greindu frá því að sjó- og flughersveitir hefðu umkringt Taívan í morgun. Þá hefði strandgæslan verið gerð út til að viðhafa eftirlit við ytri eyjar Taívan. Æfingin, sem Kínverjar hafa nefnt „Réttlætisförina 2025“, væri skýr viðvörun til aðskilnaðarsveita sjálfstæðissinna og utanaðkomandi afla. Um væri að ræða lögmæta og nauðsynlega aðgerð til að standa vörð um sjálfstæði og sjálfræði Kína. Stjórnvöld í Taívan hafa fordæmt æfingarnar og segja að það að standa vörð um frelsi og lýðræði feli ekki í sér ögrun. Þá ógni þær öryggi skipa á hafsvæðinu umhverfis eyjarnar og réttindum sjómanna. Samkvæmt bandarískum öryggisyfirvöldum leggja Kínverjar drög að því að efla getu sína til að geta ráðist inn í Taívan árið 2027. Yfirvöld á Taívan hafa á sama tíma unnið að því að efla varnir sínar og segja landsmenn ekki munu sætta sig við yfirráð kínverskra stjórnvalda. Kínverjar brugðust illa við því á dögunum þegar Bandaríkjamenn samþykktu að selja Taívönum vopn fyrir um það bil ellefu milljarða dala. Um er að ræða stærsta vopnapakkann sem ríkin hafa samið um. Sölunni var mætt með refsiaðgerðum gegn tíu einstaklingum og tuttugu fyrirtækjum, þeirra á meðal Boeing og Northrop Grumman.
Kína Taívan Hernaður Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Fleiri fréttir Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Sjá meira