Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja Samúel Karl Ólason skrifar 11. desember 2025 15:23 Bart De Wever, forsætisráðherra Belgíu, er undir miklum þrýstingi frá kollegum sínum í Evrópu. EPA/OLIVIER MATTHYS Ráðamenn í Evrópu hafa varað kollega sína í Belgíu við því að standi þeir áfram í vegi þess að hald verði lagt á frysta sjóði Rússa, sem eru að miklu leyti í belgískum banka, verði mögulega komið fram við þá eins og Ungverja í framtíðinni. Til stendur að reyna að samþykkja aðgerðirnar á leiðtogafundi eftir viku en Bandaríkjamenn hafa einnig reynst Þrándur í götu Evrópumanna.
Flestir leiðtogar Evrópu vilja nota áðurnefnda sjóði til að fjármagna 210 milljarða evra aðstoðarpakka handa Úkraínu. Sjá einnig: Biðla til Belga en tvær tillögur á borðinu Um er að ræða 140 milljarða evra í belgískum banka en þar að auki eru um 25 milljarðar í öðrum bönkum innan ESB. Bart De Wever, forsætisráðherra Belgíu, hefur staðið í vegi haldlagningarinnar og hefur lagt fram ýmsar kröfur til ESB vegna hennar. Belgar óttast það að sitja á endanum uppi með það að þurfa að endurgreiða Rússum peningana og óttast að haldlagningin gæti haft slæm áhrif á belgíska banka. Belgar eru einnig taldir hagnast töluvert á vöxtunum af þessum sjóðum en hluti þeirra vaxta hefur verið notaður til að fjármagna vopnakaup handa Úkraínumönnum. Meðal þess sem De Wever er sagður hafa farið fram á er að ESB skuldbindi sig til að borga brúsann með Belgum, komi til þess. Í frétt Politico segir að vonast sé til þess að hægt verði að komast að samkomulagi um kröfur Belga á þeirri viku sem er til leiðtogafundarins. Gætu snúið baki við Belgum Samhliða viðræðum eru evrópskir erindrekar sagðir hafa komið óánægju sinni skírlega á fram við Belga. Meðal annars hefur De Wever verið sagt að haldi hann áfram að standa í vegi aðgerða með sífellt auknum kröfum og skilyrðum, gæti á endanum verið komið fram við Belga eins og Ungverja. Ráðamenn í Evrópu hunsa að miklu leyti Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, vegna bakslags sem orðið hefur í Ungverjalandi þegar kemur að lýðræði og vegna andstöðu hans við refsiaðgerðir gegn Rússum. Eins og segir í grein Politcio fela skilaboðin í sér að rödd Belga við Evrópuborðið færi inn um eitt eyra annarra erindreka og út um hitt. Þá yrðu óskir þeirra og áhyggjur settar neðarlega á forgangslista Evrópusambandsins þegar kemur að langtímafjárlögum þess fyrir 2028-2034. Ekki yrði leitað eftir tillögum frá Belgum og símtölum þeirra yrði ekki svarað. Heimildarmenn Politico segja ástandið nokkuð alvarlegt og það kalli á aðgerðir. Útlit sé fyrir að 71,7 milljarða evra halli verði á fjárlögum Úkraínumanna á næsta ári. Fjármagn sé því gífurlega mikilvægt og Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur ekki viljað veita Úkraínumönnum aðstoð. Annar möguleiki sem hefur verið til skoðunar er að gefa út skuldabréf og fjármagna þannig aðstoð handa Úkraínumönnum. Slíkt þyrfti þó atkvæði allra aðildarríkja og Ungverjar hafa þegar sagt að þeir myndu ekki samþykkja það. Þriðji kosturinn er að einstök ríki Evrópu opni eigin sparibauka og haldi Úkraínumönnum þannig á floti. Sá kostur þykir ekki vinsæll. Vilja einnig komast í peningana Erindrekar og embættismenn Trumps hafa á undanförnum vikum ítrekað gefið til kynna að þeir vilji koma höndum yfir frysta sjóði Rússa í Evrópu, eða i það minnsta stóran hluta þeirra. Þeir hafa einnig gert Evrópumönnum ljóst að þeir vilji veita Rússum aftur aðgang að alþjóðahagkerfinu. Lokað var á þann aðgang að miklu leyti eftir innrásina 2022. Í grein Wall Street Journal segir að bandarískir erindrekar hafi fært Evrópumönnum þó nokkur skjöl að undanförnu sem snúi að enduruppbyggingu í Úkraínu. Skjöl þess fela í sér áætlanir um að áðurnefndir sjóðir verði að miklu leyti notaðir í ýmis verkefni í Úkraínu og þar á meðal gagnaver sem knúið verður með kjarnorkuveri sem rússneskir hermenn halda. Tillögurnar munu ekki vera þær sömu og voru nýverið opinberaðar í friðaráætlun Bandaríkjamanna. Þar kom fram að hundrað milljarða dala af peningum Rússa, auk hundrað milljarða frá ríkjum Evrópu, ætti að nota til uppbyggingar í Úkraínu og að Bandaríkjamenn myndu hirða helminginn af hagnaðinum. Þessar nýju tillögur eru einnig sagðar snúast um að bandarísk fyrirtæki fjárfesti í námu- og olíuvinnslu í Rússlandi og komi að því að opna aftur á flæði jarðeldsneyta frá Rússlandi til Evrópu og annarra heimshluta. Nokkrir af evrópskum heimildarmönnum WSJ sögðust ekki vissir um hvort taka ætti þessum tillögum alvarlega. Einn setti þær í samhengi við Jaltaráðstefnuna, þar sem sigurvegarar seinni heimsstyrjaldarinnar skiptu með sér Evrópu.
Evrópusambandið Belgía Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Játar innbrot í búin Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Fleiri fréttir Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Sjá meira