Að lifa er að hlusta á þúsund sögur Lestrarklefinn 26. nóvember 2025 11:05 Fyrir vísindin eftir Önnu Rósar Árnadóttur er ljóðabók í óbundnu máli þar sem farið er yfir æviskeið vísindakonu. Sjöfn Asare tekur fyrir bók Önnu Rósar Árnadóttur, Fyrir vísindin, í Lestrarklefanum. Hún hefur þetta að segja um bókina.
Fyrir vísindin er fyrsta útgefna verk skáldsins og bókmenntafræðingsins Önnu Rósar Árnadóttur, sem hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör í fyrra. Sigurljóð hennar, Skeljar, er einmitt að finna í nýútkominni bókinni sem Benedikt gefur út, en í henni segir höfundur sögu ljóðmælanda á næman og fallegan hátt sem lofar góðu um framtíðarferil skáldsins. Fyrir hvern? Fyrir vísindin er ljóðabók í óbundnu máli og í henni er farið yfir æviskeið vísindakonu, frá barnæsku og til fullorðinsára. Frásögnin er þó ekki línuleg heldur fremur hringlaga og er saga vísindakonunnar brotin upp í mismunandi kafla, lífsskeið, endurlit, sambönd og sjúkdóma. Sjöfn Asare skrifar gagnrýni á menningarvefnum Lestrarklefinn Frásögnin er meðvitað brotakennd en myndar þó fallega heild, og skilningur lesanda á ljóðmælanda dýpkar og eykst með hverju ljóði. Orðfæri höfundar er fallegt og beinskeytt og hún notar á tíðum vísanir í bókmenntir fyrri tíma í bland við dulrænan heim tilfinninganna til að skapa heildrænt og draumkennt andrúmsloft þar sem orðin leika sér hvert við annað og mynda brú milli manneskja. Samrunni fræða Það að ljóðmælandi sé vísindalega þenkjandi er sérlega áhugavert, en oft á tíðum er spennandi að sjá hvernig skáld vefa saman eitthvað jafn ólíkt og ljóðlist og hörð vísindi. Benda á þetta sameiginlega sem finnst í hvoru tveggja, þennan fínlega þráð uppgötvana, staðreynda og túlkunar, og það hvernig sumt fólk er eins og kallað til að stunda ákveðin fræði eða verk. Kristallast þessi samruni vel í ljóðinu Vísindakonan, en hér má sjá brot: ég er ekki skyggn hvíslar hún þar sem hún stendur fyrir framan titrandi glerskápinn og talan kemur til hennar nákvæm upp á kommu ég er ekki skyggn það eru bara þessi loftnet í mér (bls. 8) Umfjöllunina í heild sinni má lesa hér. Fleiri ritdóma er að finna á Lestrarklefinn.is
Menning Bókmenntir Bókaútgáfa Jól Mest lesið Britney Spears handtekin og í haldi yfir nótt Lífið Tóti og Ósk eiga von á túrbóbarni Lífið Poppstjarna notaði lag Bríetar: „Litla Bríet er að öskra núna“ Lífið Vinsælustu sýningu leikhússins frestað vegna óvæntra meiðsla Lífið Er Jón Gnarr búinn að horfa aðeins of oft á Pretty Woman? Lífið Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Giftu sig eftir sex mánaða bakpokaferðalag Lífið Bruce Campbell með ólæknandi krabbamein Bíó og sjónvarp Fimm hlutu bókmenntaverðlaun kvenna og kvára Lífið Fiskur og kjöt einnig á boðstólnum hjá Sollu Lífið Fleiri fréttir Kerry Ellis og The Barricade Boys saman í Broadway Party í Hörpu Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira