Lífið samstarf

Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsi­legum Firði

Kona
Hjá versluninni Konu í Firði í Hafnarfirði má finna merki sem fást í fáum öðrum verslunum.
Hjá versluninni Konu í Firði í Hafnarfirði má finna merki sem fást í fáum öðrum verslunum.

Tískuverslunin Kona tekur á móti viðskiptavinum í stærra og glæsilegra húsnæði í nýbyggingu Fjarðar. Laufey, eigandi verslunarinnar, leggur áherslu á vandaðan fatnað, persónulega þjónustu og að konur hafi svigrúm til að skoða, máta og finna það sem hentar þeim.

Laufey stofnaði Konu árið 2014 og fagnar því tólf ára afmæli í ár. Með flutningunum í nýja húsnæðið hefur búðin fengið meira rými og um leið hefur bæst við úrvalið.

„Búðin er orðin stærri og flottari. Ég er alltaf opin fyrir nýjungum og bætti nýlega við Danska merkinu Karmamia Copenhagen. Ég þekkti merkið og hafði lengi langað til að bjóða upp á það.“

Hjá Konu má finna merki sem fást í fáum öðrum verslunum hér á landi, þar á meðal Mos Mosh, Créton, Bruuns Bazaar og Karmamia. Laufey velur fatnaðinn með gæði og vandaðan frágang að leiðarljósi.

„Þetta er vandaður fatnaður, góð efni og góður saumaskapur. Hér er allt frá úlpum niður í náttföt, skyrtur, buxur, kjóla og dragtir, ásamt veskjum, hönskum, húfum, beltum og öðrum fylgihlutum. Ég er líka með úrval af fallega skartinu frá Óskaböndum sem er íslensk hönnun."

Þjónustan skiptir máli

Laufey hefur starfað við sölu kvenfatnaðar í 26 ár og byggt upp tryggan viðskiptavinahóp. Konur koma víða að til að versla hjá henni og sumar láta senda sér vörurnar heim.

„Margar koma alltaf við þegar þær eru í bænum. Aðrar hringja bara í mig og ég sendi þeim. 

Minn kúnnahópur vill gjarnan koma, máta og finna efnin. Við leggjum ríka áherslu á góða þjónustu og dekrum við þær. Þær þakka okkur oft sérstaklega fyrir þjónustuna.“

Stærsti viðskiptavinahópurinn er konur frá fertugu og upp úr, þótt yngri konur og stelpur líti einnig inn. Elstu viðskiptavinirnir eru um nírætt. Laufey passar jafnframt að verslunin sé ekki yfirhlaðin og hefur aðeins hluta stærðanna frammi og sækir aðrar á lager eftir þörfum.

„Mér leiðast sjálfri yfirhlaðnar verslanir. Ég vil að það sé gott að koma hingað og skoða.“

Haustið fær meira vægi

Haustið er orðið stórt tímabil í versluninni og Laufey segir söluna dreifast meira yfir mánuðina fyrir jól. Stóru verslunardagarnir í nóvember hafi þar sitt að segja.

Nú má meðal annars finna víðar buxur, gallabuxur, grófar peysur og fallegar yfirhafnir hjá Konu, bæði ullarkápur og dúnúlpur. Hér fyrir neðan má sjá brot af úrvali verslunarinnar og einnig hægt að skoða á facebook og Instagram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.