Hafi áhrif á innan við tíu prósent fyrstu kaupenda Árni Sæberg skrifar 27. október 2025 15:13 Helgi Teitur Helgason er framkvæmdastjóri einstaklingssviðs Landsbankans. Landsbankinn Framkvæmdastjóri einstaklingssviðs Landsbankans segir að breytt lánaframboð bankans hefði ekki haft áhrif á lánsmöguleika yfir 90 prósent þeirra fyrstu kaupenda sem hafa tekið íbúðalán hjá bankanum á þessu ári.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í aðsendri grein Helga Teits Helgasonar, framkvæmdastjóra einstaklingssviðs Landsbankans, sem hann fékk birta hér á Vísi í dag. Landsbankinn kynnti á föstudag breytingar á framboði bankans á íbúðalánum í kjölfar dóms Hæstaréttar í vaxtamáli gegn Íslandsbanka. „Við lögðum mikla áherslu á að bregðast hratt og örugglega við dómnum. Okkar markmið var að finna leiðir til að bjóða viðskiptavinum sem lægsta vexti og bjóða fyrstu kaupendum upp á lán með sem lægstri greiðslubyrði. Um töluverðar breytingar var að ræða og eðlilegt að umræða hafi skapast um áhrifin sem þær kunna að hafa. Rétt er að ítreka að breytingarnar hafa engin áhrif á lán sem voru veitt áður en dómurinn féll,“ segir Helgi Teitur. Þríþættar breytingar Hann rekur að í stuttu máli hafi breytingarnar verið þríþættar. „1. Við bjóðum nú upp á nýjan möguleika, sem er að festa vexti á óverðtryggðu íbúðaláni í eitt ár, en þannig er hægt að fá lægri vexti en voru í boði á óverðtryggðu íbúðaláni með breytilega vexti. Lánið er án uppgreiðslugjalds. 2. Breytilegir vextir á óverðtryggðu íbúðaláni bera nú fast vaxtaálag út líftíma lánsins sem leggst ofan á stýrivexti Seðlabankans á hverjum tíma. 3. Verðtryggð íbúðalán eru nú eingöngu í boði til 20 ára á föstum vöxtum og aðeins fyrir fyrstu kaupendur. Bæði er hægt að fá lán með jöfnum greiðslum og jöfnum afborgunum.“ Rekur stöðu fyrstu kaupenda Hann segir það ekki síst síðarnefndu breytinguna sem hafi vakið mikla umræðu og vangaveltu. Hann vilji því fara yfir áhrif breytinganna á fyrstu kaupendur. „Fyrir breytinguna gátu fyrstu kaupendur tekið verðtryggð lán á breytilegum vöxtum fyrir allt að 70% af kaupverðinu til 30 ára. Þeim bauðst síðan að taka óverðtryggt viðbótarlán upp að 85% af verðmæti fasteignarinnar. Nú geta fyrstu kaupendur tekið verðtryggt lán til 20 ára á föstum vöxtum fyrir allt að 85% af kaupverði.“ Það sem af er þessu ári hafi meðalupphæð íbúðalána hjá Landsbankanum til fyrstu kaupanda verið rúmlega 40 milljónir króna. Fyrir breytingu hafi lægsta mánaðarlega greiðslubyrði af 40 milljóna króna láni um 225.000 krónur en eftir breytingu verður hún um 273.000 krónur og nemur hækkunin því um 48.000 krónum á mánuði. Hér er miðað við 85 prósenta veðhlutfall. Á móti kemur að eignamyndun verður hraðari. Hefur áhrif á innan við tíu prósent „Þetta er töluverð hækkun á greiðslubyrði en hvað sýna gögnin okkur um áhrif breytinga á lánaframboði á möguleika fyrstu kaupenda til að komast inn á fasteignamarkaðinn? Á þessu ári hafa hundruðir fyrstu kaupenda komist inn á fasteignamarkaðinn með láni frá Landsbankanum. Flestir þeirra hafa tekið verðtryggð lán og hafa staðist greiðslumat með góðum afgangi. Rúmlega 85% höfðu afgang yfir 60.000 krónum á mánuði og yfir helmingur hafði afgang yfir 150.000 krónum. Veðhlutfall hjá fyrstu kaupendum var að meðaltali um 70%. Hlutfall verðtryggðra lána hefur það sem af er þessu ári verið um 60% og hlutfall óverðtryggðra lána um 40%.“ Þetta sýni að breytt lánaframboð hefði ekki haft áhrif á lánsmöguleika yfir 90 prósent þeirra fyrstu kaupenda sem hafa tekið íbúðalán hjá bankanum á þessu ári. Áfram miðað við 25 ára lán Helgi Teitur segir að einnig hafi verið rætt um að breytingarnar muni leiða til þess að aðeins hátekjufólk geti keypt sér íbúð á höfuðborgarsvæðinu. Þar sé vísað til þeirrar reglu að greiðslubyrði af láni til fyrstu kaupenda megi ekki vera umfram 40 prósent af ráðstöfunartekjum þeirra, samkvæmt reglum Seðlabankans um greiðslubyrðarhlutfall. „Við reiknuðum því út hver áhrifin yrðu á fyrstu kaupendur sem eru að kaupa sér íbúð á 65 milljónir króna. Í dag getur slíkur kaupandi tekið lán fyrir allt að 85% af kaupverði, eða rúmlega 55 milljónir króna. Mánaðarleg greiðslubyrði af slíku verðtryggðu láni er um 371.000 krónur. Til þess að standast greiðslumat og uppfylla kröfur Seðlabankans um greiðslubyrðarhlutfall þurfa útborguð laun, hvort sem það er einstaklingur eða par sem er að kaupa, að nema um 825.000 kr. á mánuði. Þetta er töluverð fjárhæð, en hvaða áhrif hafa breytingarnar á lánaframboði bankans á slíkan kaupanda?“ Fyrir breytingu hafi fyrsti kaupandi getað tekið verðtryggt lán á breytilegum vöxtum til allt að 30 ára, upp að 70 prósenta veðhlutfalli og síðan hafi hann getað tekið óverðtryggt lán upp að 85 prósenta veðhlutfalli til 25 ára. Samanlögð greiðslubyrði við þær aðstæður hafi verið um 307.000 krónur á mánuði. Þrátt fyrir að í þessu dæmi muni um 64.000 krónum á mánaðarlegum greiðslum séu skilyrði um útborguð laun samkvæmt útreiknuðu greiðslubyrðarhlutfalli Seðlabankans nánast þau sömu fyrir og eftir breytingar. Skýringin sé aðallega sú að þegar reiknað er út hvort lántaki standist greiðslubyrðarhlutfall Seðlabankans sé áfram miðað við verðtryggt lán til 25 ára. Það skuli tekið fram að þetta dæmi sé sett fram til viðmiðunar. Í greiðslumati sé tekið tilliti til ýmissa þátta, svo sem annarra skulda, fjölskyldustærðar, rekstur bíls og fleira. Takmarka áhættuna Þá segir hann að dómur Hæstaréttar valdi því að bankinn bjóði að óbreyttu ekki upp á verðtryggð lán á breytilegum vöxtum. „Við viljum engu að síður bjóða fyrstu kaupendum upp á verðtryggð lán til að gera þeim auðveldara að komast inn á markaðinn og eru þau á föstum vöxtum. Til þess að fjármagna verðtryggð útlán gefur bankinn út sértryggð verðtryggð skuldabréf. Þar sem óvíst er hversu mikil eftirspurn verður eftir slíkum skuldabréfum til langs tíma og til að takmarka fastvaxtaáhættu bankans var ákveðið að takmarka framboðið við fyrstu kaupendur. Af sömu ástæðu er lánstíminn takmarkaður við 20 ár.“ Loks segir hann það óumdeilt að að þegar vaxtastig er hátt séu lán dýrari og greiðslubyrði hærri. Það sem við öll þurfum og viljum er lægri verðbólga, lækkandi vaxtastig og stöðugleiki í framboði íbúða. Við slíkar aðstæður geti fyrstu kaupendur og aðrir tekið næsta skref, fært sig yfir í óverðtryggð lán og aukið eigið fé sitt jafnt og þétt. Þar með styrkist staða þeirra á fasteignamarkaði, hvort sem þeir vilj stækka við sig eða minnka eða einfaldlega skapa sér öryggi og svigrúm til framtíðar.
Landsbankinn Vaxtamálið Lánamál Fjármálafyrirtæki Neytendur Fasteignamarkaður Húsnæðismál Fjármál heimilisins Efnahagsmál Mest lesið Tilkynntu Terra og Kubb eftir fundi með sveitarfélögum Viðskipti innlent „Það verða fjöldagjaldþrot“ Viðskipti innlent Hafi áhrif á innan við tíu prósent fyrstu kaupenda Viðskipti innlent Niðurstaða í máli Arion banka um miðjan desember Viðskipti innlent Síldarvinnslan birtir jákvæða afkomuviðvörun Viðskipti innlent „Niðursveifla í byggingariðnaði er hafin“ Viðskipti innlent „Ég fæ hroll þegar fólk segist hafa notað sama lykilorðið í 20 ár“ Samstarf Línur gætu skýrst hjá Norðuráli í næstu viku Viðskipti innlent „Klárum þetta með góðu partíi heima hjá mér í kvöld“ Atvinnulíf Ráðin framkvæmdastjóri Sólar ehf. Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Niðursveifla í byggingariðnaði er hafin“ Niðurstaða í máli Arion banka um miðjan desember Hafi áhrif á innan við tíu prósent fyrstu kaupenda Ráðin framkvæmdastjóri Sólar ehf. Tilkynntu Terra og Kubb eftir fundi með sveitarfélögum Línur gætu skýrst hjá Norðuráli í næstu viku Síldarvinnslan birtir jákvæða afkomuviðvörun „Það verða fjöldagjaldþrot“ Veitingamenn uggandi yfir erfiðum rekstrarskilyrðum Meirihluti vill afnema áminningarskyldu Byrjaði 18 ára í þjónustuverinu og hættir nú sem framkvæmdastjóri Öll lónin full og vatnsbúskapur tók stökkbreytingum Tekjur Isavia jukust um tæpa 1,2 milljarða króna milli ára Þrjú kvár stýra fyrirtækjum Hyggjast opna lágvöruverslun og Orkustöð á Blönduósi Landsbankinn breytir framboði á lánum eftir vaxtadóminn Ljóst að kaupverð á íbúðum í Vesturbugt verði í hærri kantinum „Atvinnulífið er sannarlega að kólna“ Landsbankinn hagnast um tæpa 30 milljarða á níu mánuðum Síminn kaupir Motus og Pei Sjóvá hagnast um 666 milljónir það sem af er ári Húsleit hjá Terra Kampavínsklúbbar, innherjasvik og nú meint skattsvik Telur neytendur hafa unnið pyrrosarsigur í vaxtamálinu Samstöðin tapaði fimmtíu milljónum Bara tala kynnti „Bare si det“ til leiks í Noregi Getur tekið einstæða foreldra allt að átján ár að safna fyrir íbúð Fasteignamarkaðurinn „kaupendamarkaður“ að mati fasteignasala Hagnaður minnkar um 1,5 milljarða milli ára Skynjar kvíða og ótta meðal starfsmanna Sjá meira