Einn hinna látnu skotinn af lögreglu og annar særður Samúel Karl Ólason skrifar 3. október 2025 11:05 Frá vettvangi árásarinnar í gær. AP/Peter Byrne, PA Annar þeirra sem létu lífið í hnífaárás við bænahús gyðinga í Manchester í gær var skotinn til bana og annar til viðbótar særður. Árásarmaðurinn var ekki með byssu og virðist sem fólkið hafi verið skotið af lögregluþjóni eða -þjónum.
Í tilkynningu frá lögreglunni á stór-Manchestersvæðinu (GMP) segir að annað fórnarlambið sem lést hafi verið með banvænt skotsár. Einn þeirra þriggja sem fluttir voru á sjúkrahús var einnig með skotsár. Árásarmaðurinn, sem hét Jihad Al Shamie, var ekki vopnaður byssu og voru það eingöngu lögregluþjónar sem hleyptu af skotum á svæðinu. Yfirmaður lögreglunnar segir að því sé útlit fyrir að viðkomandi fórnarlömb hafi orðið fyrir skotum lögregluþjóns eða þjóna, en það hefur ekki verið staðfest enn og munu krufningar og frekari rannsóknir fara fram í dag. Bæði fórnarlömbin munu þó hafa staðið bak við dyr bænahússins, þar sem fólk reyndi að koma í veg fyrir að árásarmaðurinn kæmist inn í húsið. Eins og áður segir, létu tveir lífið í árásinni. Adrian Daulby var 53 ára og Melvin Cravitz 66 ára. Hvor þeirra var skotinn til bana af lögreglu liggur ekki fyrir. Litið er á árásina sem hryðjuverk.
England Erlend sakamál Hryðjuverkastarfsemi Bretland Mest lesið Vaktin: Útför Davíðs Oddssonar Innlent Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Erlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Kvöddu Davíð hinsta sinni Innlent „Ég var skelfingu lostinn“ Innlent Átta ár fyrir gróf brot gegn gestkomandi barni og eiginkonu Innlent Brotist inn hjá Alberti Innlent Bandarísk herflugvél fórst í Írak Erlent Segir gæði sérnáms heimilislækna í hættu Innlent Fleiri fréttir Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Tvær misheppnaðar hryðjuverkaárásir á einum degi Telur að Bandaríkjastjórn vilji sundra Evrópu Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Bandarísk herflugvél fórst í Írak Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Þrír handteknir í tengslum við sprengingu í Ósló Úthýsa aðalsmönnum úr lávarðadeild breska þingsins Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Talin hafa skotið tíu skotum í átt að heimili Rihönnu Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Sjá meira