Leikskóli heimtar tugi þúsunda fyrir „listaverk“ barnanna Hólmfríður Gísladóttir skrifar 25. september 2025 07:12 Listaverk barna eru foreldrum ómetanleg en það er ekki þar með sagt að þeir séu tilbúnir til að greiða tugi þúsunda fyrir að fá þau afhent. Getty Foreldrar leikskólabarna í Brisbane í Ástralíu efndu til mótmæla á dögunum, þegar leikskólastjórnendur kröfðust 163 þúsund króna fyrir „listaverk“ barnanna.
Craigslea Community Kindergarten and Preschool í Brisbane var lokað í síðasta mánuði, þegar fjárframlög til skólans voru stöðvuð vegna athugasemda við stjórnun hans. Meirihluti stjórnar skólans hafði þá sagt af sér og gjaldkerinn Thomas D'Souza tekið við stjórnartaumunum. Þessu mótmæltu foreldrar og fjárframlögin voru stöðvuð í kjölfarið. D'Souza virðist í kjölfarið hafa tekið þá ákvörðun að selja foreldrum möppur með listaverkum barna þeirra og myndum af börnunum við listsköpunina, til að greiða upp skuldir. Verðið? Jú, 163 þúsund á möppu. Foreldrar brugðust ókvæða við en þegar móðir hugðist taka listaverkin án greiðslu, var hún tilkynnt til lögreglu. Greint hefur verið frá innbroti á leikskólanum en ekki fengist staðfest hvort móðirinn var þar á ferðinni. Ríkisstjóri Queensland er meðal þeirra sem hafa tjáð sig um málið. „Leyfum krökkunum að taka heim fingramálverkin sín og höldum áfram með lífið,“ sagði hann. Þá staðfestu yfirvöld að foreldrar ættu sannarlega rétt á verkum barna sinna. Málið virðist hafa endað vel fyrir fjölskyldurnar en greint var frá því í gær að yfirvöld hefðu sótt möppurnar á leikskólann og að foreldrar gætu sótt þær.
Ástralía Leikskólar Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira