Valsmenn semja við einn markahæsta leikmanninn í Lengjunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. september 2025 14:44 Dagur Orri Garðarsson fer í Val eftir þetta tímabil. Valur Valsmenn hafa skrifað undir fimm ára samning við framherjann Dag Orra Garðarsson.
Dagur sem er nýorðinn tvítugur kemur til liðsins frá Stjörnunni í Garðabæ en hann hefur leikið á láni hjá HK í sumar þar sem hann hefur skorað ellefu mörk í Lengjudeildinni. „Við erum afar stolt af því að fá Dag Orra til félagsins til næstu ára. Hann er leikmaður sem hefur sýnt einstaka hæfileika, bæði sem markaskorari og leiðtogi á vellinum,“ sagði Björn Steinar Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, við miðla Vals. „Við höfum fylgst með honum lengi og hann hefur sannað það fyrst í 2. deildinni og svo í Lengjudeildinni að hann er alvöru markaskorari. Samningurinn undirstrikar þá stefnu sem við höfum tekið – að fjárfesta í framtíðinni og það er okkar trú að hjá okkur muni Dagur Orri taka mikilvæg skref á sínum ferli,“ sagði Björn Steinar Sjálfur var Dagur Orri hæstánægður með samninginn þegar búið var að undirrita að Hlíðarenda í gærkvöldi. „Þetta er stórt skref fyrir mig að ganga til liðs við klúbb eins og Val. Ég fann það strax á samtölum mínum við félagið að hér er mikill metnaður og fagmennska. Ég varð strax heillaður af því sem mér var kynnt og ég mun svo sannarlega leggja mitt af mörkum til þess að félagið verði áfram í fremstu röð,“ sagði Dagur Orri við miðla Vals. Dagur Orri er á mikilvægum tímapunkti á tímabilinu með HK sem er í harðri baráttu um að komast upp í Bestu deildina. Dagur mun klára það mikilvæga verkefni en samningur hans við Val gildir frá 1. janúar 2026.
Besta deild karla Valur HK Lengjudeild karla Mest lesið Kjartan Atli lætur af störfum Körfubolti Indverjar brjáluðust út í Messi og brutust inn á völlinn Fótbolti Salah lagði upp í endurkomunni en Ekitike sá um mörkin Enski boltinn „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ Enski boltinn Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Fótbolti Mesta heillaskref ferilsins að hafa verið rekinn Enski boltinn Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness: „Bara kjánalegt að horfa á þetta“ Körfubolti Dýrmætur tími með börnunum áður en alvaran tekur við Fótbolti Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Handbolti Fimmtugur og fúlskeggjaður Svíi stal senunni á HM Sport Fleiri fréttir Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina Sjá meira