Takk starfsfólk og forysta ÁTVR Siv Friðleifsdóttir skrifar 11. ágúst 2025 09:02 Starfsfólk og forysta ÁTVR á þakkir skildar fyrir framúrskarandi lipra og góða þjónustu. Einnig fyrir að standa heil með forsendum þess að ríkið reki ÁTVR. Í lögum kemur fram að markmið rekstrar ÁTVR er að skilgreina umgjörð um smásölu áfengis og heildsölu tóbaks sem byggist á bættri lýðheilsu og samfélagslegri ábyrgð, að takmarka og stýra aðgengi að áfengi og tóbaki og draga þannig úr skaðlegum áhrifum áfengis- og tóbaksneyslu, að vernda ungt fólk gegn neyslu áfengis og tóbaks og takmarka framboð á óæskilegum vörum. Þessum lögfestu forsendum hafa forstjórinn og aðstoðarforstjórinn, Ívar Arndal og Sigrún Ósk Sigurðardóttir, haldið á lofti um árabil í starfseminni allri og þegar fjölmiðlar hafa leitað eftir viðbrögðum þeirra við hin ýmsu tækifæri. Takk bæði fyrir að hafa verið skýr á þessu. Þjónustan til fyrirmyndar Ekki er ég bindindismaður og versla því stundum í ÁTVR. Vöruúrval er gott og alltaf er þjónusta starfsmanna til fyrirmyndar. Takk starfsmenn fyrir framúrskarandi góða þjónustu. Fyrst áfengi er ekki bönnuð vara og einhver þarf að sjá um söluna, er gott að það er gert undir hatti ÁTVR því þið seljið á þann hátt að lýðheilsa er vernduð sem mest og samfélagsleg ábyrgð höfð að leiðarljósi. Þótt sumir segi að það sé þægilegt að kaupa áfengi með steikinni í matvöruverslun tel ég ekki eftir mér að ganga nokkur aukaskref til að kaupa hjá ÁTVR því ég veit að rannsóknir og gagnreynd þekking sýnir að einkasala ríkis á áfengi, eins og viðhöfð er á öllum Norðurlöndum nema Danmörku, er til þess fallin að vernda velferð ungmenna og lýðheilsu allra. Að mínu mati er eitt mikilvægasta markmið samfélags okkar að vernda velferð barna og ungmenna og bæta forvarnir og lýðheilsu fyrir alla. Velta sér upp úr peningum Afleitt er að markaðsvæða áfengissöluna með tilheyrandi auglýsingamennsku svo netsalar geti selt sem mest og makað krókinn með áfengissölu upp á milljarða króna. Ekki bera netsalar samfélagsskaðann af neyslunni heldur samfélagið. Í fjölmiðlafrétt í fyrra kom fram “Eigandi netverslunar með áfengi býst við að velta nærri tveimur milljörðum króna í ár en viðskiptin hafa aldrei verið jafn blómleg. Hann hefur sætt lögreglurannsókn en málið er orðið að pólitísku bitbeini innan ríkisstjórnarinnar.” Jú, þessi umdeilda sala er til rannsóknar og er breiðfylking forvarnarsamtaka sammála kæru ÁTVR um að hún sé ólögleg. Enn er beðið niðurstöðu lögreglu í málinu þótt sala þessi hafi verið kærð til lögreglu þann 16. júní 2020 fyrir rúmlega fimm árum. Slíkur dráttur á niðurstöðu er undrunarefni. Ég hef ekki áhuga á að borga hærri skaðaskatta til að dekka þann samfélaglega kostnað sem fylgir því að netsalarnir velti sér upp úr peningum fengnum með áfengissölu þvert á lýðheilsustefnu stjórnvalda. Ekki trúi ég, fyrr en tek á, að stjórnvöld sem tala um hagræðingu ætli að opna fyrir slíkan útgjaldakrana. Krana upp á milljarða króna árlega. Stóraukinn samfélagskostnaður Hver væru áhrif af því að leggja ÁTVR niður og heimila sölu áfengis í matvöruverslunum? Jú, allra veigamesta afleiðingin er stóraukinn samfélagskostnaður, sem fyrr segir. Aukin sjúkdómabyrði, meiri örorka, fleiri slys, meiri þungi í barnavernd, aukin verkefni lögreglu og svo framvegis. Velferð barna og lýðheilsa allra er undir. Þá færu umfangsmiklar áfengisauglýsingar í gang þar sem áfengi og tilboðspakkar væru auglýstir. Áfengi yrði otað að fólki, ungum sem öldnum. Það væri afleitt því áfengi er ekki eins og hver önnur verslunarvara eins og flestir vita. Auglýsingum yrði beint að fullorðnum og ungmennum. Slíkt sjáum við nú þegar og stjórnvöld bregðast ekki við. Önnur áhrif, sem skipta líka máli fyrir hóp fólks, eru að vöruúrval myndi minnka mjög mikið. Þetta vita allir sem hafa keypt sér áfengi í matvöruverslunum á Spáni, í Danmörku og víðar. Örfáar tegundir yrðu seldar, einungis þær sem tryggðu matvörubúðinni mestan gróða. Þá kæmi talsvert högg á landsbyggðina með niðurlagningu starfa ÁTVR. Þótt ég líti ekki á starfsemi ÁTVR sem byggðamál heldur lýðheilsu- og velferðarmál verður ekki framhjá því litið að fjölmörg störf tapast um landið ef þeim verslunum yrði lokað. Lögregla ávörpuð í WHO skýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) gaf út skýrslu nú í febrúar 2025 Norrænu áfengiseinkasölurnar: mikilvægi hlutverks þeirra í heildstæðri áfengisstefnu og bættri lýðheilsu. Stofnunin hvetur norræn stjórnvöld til að forgangsraða í þágu heilsu og standa gegn ásókn í átt að einkavæðingu í áfengissölu. Slík ásókn getur brotið niður alþjóðlega viðurkennt fyrirkomulag, sem dregur úr áfengistengdum skaða og verndar lýðheilsu. Í skýrslunni er lögreglan ávörpuð, en þar segir “In spite of this, online sales of alcohol have increased significantly in recent years. The online sale of alcohol has been reported to the police, who have yet to decide whether charges will be filed against online retailers (111).” Stofnunin þekkir því það ófremdarástand sem hér ríkir vegna aukinnar netsölu áfengis til neytenda beint af lager innanlands og veit að lögreglan hefur haft kæru til rannsóknar í fimm ár. Málshraði lögreglu á hraða snigils Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu sat fyrir svörum Morgunblaðsins þann 7. ágúst sl. og hélt á lofti að málshraði í málum er snerta ungmenni hefði verið aukinn um 500%. Áhersla væri á svokallaða snemmtæka íhlutun og að ný fjárveiting Alþingis hefði orðið til þess að unnt hefði verið að fjölga stöðugildum rannsóknarlögreglumanna og eins þeirra sem fara með ákæruvald í málum sem lögregla annast saksókn í. Með allri virðingu þá hlýtur maður að spyrja, af hverju hefur þá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu ekki klárað kæruna á hendur netsölum áfengis í ríflega fimm ár? Málið er á hraða snigils. Um er að ræða mál sem skiptir ungmenni og samfélagið allt mjög miklu máli. Meðan lögreglan heldur málinu hjá sér hefur netsalan frítt spil og grefur um sig. Staða þessi er til vansa. Samkvæmt lögum á lögreglan að hraða málsmeðferð í kærumáli eins og unnt er. Nú verður lögreglan að klára verkið. Vonandi sigrar lýðheilsan og vernd ungmenna að lokum þannig að áfram verði unnt að reka áfengissölu á Íslandi á samfélagslegum forsendum. Höfundur er fyrrverandi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Siv Friðleifsdóttir Áfengi Lögreglan Netverslun með áfengi Mest lesið Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun Takk Inga Sæland Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Opið bréf til Landssamtaka lífeyrissjóða Kjartan Björgvinsson Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason Skoðun Að virða niðurstöðu sem manni líkar ekki Erna Bjarnadóttir Skoðun Helmingsafsláttur af mennskunni Arndís Þórarinsdóttir Skoðun Ef börnin eru ekki vandamálið, hvað er þá að? Birgir Hrafn Birgisson Skoðun Getum við plís lagt niður Fjölmiðlanefnd Daníel Hjörvar Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun 5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason skrifar Skoðun Þegar allt fer aftur á fullt – munum eftir fólkinu Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Læsi er sameiginleg ábyrgð og fjárfesting til framtíðar Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun PISA - Viljum við árangur án erfiðisins? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers eiga fatlaðir og foreldrar þeirra að gjalda? Margrét Össurardóttir skrifar Skoðun Alvöru eða sérhæfðir kennarar Svava Björg Mörk skrifar Skoðun Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir skrifar Skoðun Getum við plís lagt niður Fjölmiðlanefnd Daníel Hjörvar Guðmundsson skrifar Skoðun Gulur september – styðjum hvert annað Soffía Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hatur í garð gyðinga Árni Már Jensson skrifar Skoðun Samtal getur bjargað lífi Alma D. Möller skrifar Skoðun Erum við Íslendingar hópheimskir? Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun 200 milljarðar – og við getum gert betur Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög – en á kostnað hverra? Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Leiðin út úr PISA-lægðinni Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Gæfan sem við tökum ekki eftir Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Opið bréf til Landssamtaka lífeyrissjóða Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ef börnin eru ekki vandamálið, hvað er þá að? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Sjá meira
Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar
Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir skrifar
Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun