Innlent

Vörðuóðir ferða­menn fremji náttúru­spjöll

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Ferðamenn virðast löngum hafa haft það áhugamál að stafla steinum hvar sem þeir koma.
Ferðamenn virðast löngum hafa haft það áhugamál að stafla steinum hvar sem þeir koma. Vísir/GVA

Leiðsögumaður segir ferðamenn ekki átta sig á náttúruspjöllum sem þeir fremji með því að reisa vörður hvar sem þeir koma á landinu. Vörður hafa jafnvel verið reistar í miðborginni, komist ferðamennirnir í nógu marga steina.

Leiðsögumaður segir áhuga ferðamanna á vörðugerð vera vandamál, og það sé hreint ekki nýtt af nálinni.

„Þetta er einhver ótrúleg þörf hjá fólki að skilja eftir, að þau telja, listaverk sem segir „ég var hér,“ segir leiðsögumaðurinn Hildur Þöll Ágústsdóttir.

Víða séu bæði leiðsögumenn og landverðir duglegir að sparka vörðunum niður, þar sem þeir sjái þær.

„Oft á tíðum eru þetta náttúruspjöll því það er verið að taka steina sem eru búnir að vera fastir í aldir, og það er verið að breyta landslagi. Þannig að það getur ekki verið neitt annað en náttúruspjöll.“

Vandamálið sé stærra þar sem ferðamenn séu fleiri.

„Laufskálavarða er annar staður, þetta var orðið mikið vandamál á Þingvöllum fyrir nokkrum árum. Þau tóku sig bara til og girtu af svæðið. En það má sjá þetta mjög víða,“ segir Hildur. Ferðamenn hafa jafnvel tekið upp á því að stafla steinum í miðborginni, til að mynda í námunda við Hörpu.

Hildur segir ferðamenn virðast telja að þeir séu að skapa einhvers konar listaverk með vörðugerðinni. Það sé þó öðru nær.Vísir/Vésteinn

Og það er ekki bara á Íslandi þar sem fólk hefur amast yfir vörðugerðargleði ferðamanna, eins og sjá má í sjónvarpsfréttinni hér að ofan.

Hildur segir fátt til ráða, annað en að fræða ferðamenn um hvers kyns ósiður vörðugerðin sé.

„Ísland er ekki Disneyland, það er ekki allt leyfilegt hérna.“

Mælirðu með því fyrir fólk sem er að horfa, ef það rekst á þetta, að sparka þessu niður?

„Já, kannski ekki að dúndra þessu niður en reyna svona að ímynda sér hvernig steinarnir lágu. Reyna að koma þessu niður á sem náttúrulegastan hátt aftur.“

Í gegnum tíðina hefur nokkuð oft verið fjallað um þetta háttalag ferðamann, íslenskra og erlendra, en fátt virðist þó hafa breyst. Hér að neðan má sjá nokkrar fréttir sem birst hafa á síðustu árum um vörðuglaða ferðamenn.


Tengdar fréttir

Skera upp herör gegn ferðamannavörðum

Leiðsögumenn segja að vörður sem ferðamenn hlaða séu stórt vandamál í náttúru Íslands. Hópur leiðsögumanna fór á föstudaginn í ferð gagngert til þess að fella vörður, sem þeir kalla raunar vörtur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×