Leggja til 80 milljónum árlega í nýja líkbrennslu Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 6. júlí 2025 13:57 Bálstofa er nú starfrækt í Öskjuhlíð. Aðsend Dómsmálaráðherra og Kirkjugarðar Reykjavíkur hafa undirritað viljayfirlýsingu um fjárframlag til uppbyggingar nýrrar líkbrennslu í Gufuneskirkjugarði. Ríkissjóður leggur fram 80 milljónir króna árlega í tólf ár til að standa undir stofnkostnaði nýrrar líkbrennslu.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Þar segir að um sé að ræða mikilvægt skref til að leysa þann bráðavanda sem legið hefur fyrir vegna athugasemda heilbrigðiseftirlits í garð starfsemi líkbrennslunnar í Fossvogi. Samhliða verði til staðar umhverfisvæn og gjaldfrjáls líkbrennsluþjónusta á Íslandi. Stenst ekki nútímakröfur Kirkjugarðar Reykjavíkur eru í senn reknir sem sjálfseignastofnun og almannaheillafélag, sem stafar meðal annars að líkbrennslu á grundvelli samkomulags við ríkið. Með viljayfirlýsingu hafi með varanlegum hætti verið tryggt að mikilvægir innviðir samfélagsins séu nútímavæddir og þjóni hlutverki sínu. Líkbrennsla hefur verið starfrækt í Fossvogi af Kirkjugörðum Reykjavíkur frá árinu 1948 og er hún fyrsta og eina líkbrennsla landsins. Í tilkynningu dómsmálaráðuneytisins segir að líkbrennslan þar standist ekki lengur nútímakröfur um mengunarvarnir og hefur Heilbrigðieftirlit Reykjavíkur gert alvarlegar athugasemdir við starfsemina. Fyrirséð hafi verið að afköst brennslunnar gætu dregist verulega saman og að þörfin fyrir líkgeymslur hefðu aukist. Ef ekkert hefði verið að gert hefði getað skapast verulegur fráflæðisvandi frá heilbrigðisstofnunum. Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og Ingvar Stefánsson framkvæmdastjóri Kirkjugarða ReykjavíkurStjórnarráðið Þessu til viðbótar hafi þörf fyrir þjónustuna aukist verulega á síðustu árum og fyrirsjáanlegt sé að aukningin verði enn meiri á komandi árum með áframhaldandi fólksfjölgun hér á landi og aukinni eftirspurn. Starfsemi hefst á næsta ári Áttatíu milljóna króna framlag ríkissjóðs mun nýtast til kaupa á tveimur nýjum líkbrennsluofnum og viðbyggingu við húsnæði Kirkjugarða Reykjavíkur í Gufunesi. Búnaður og ofnar verði í fremstu röð hvað varðar umhverfisvernd og mengunarvarnir. Gert er ráð fyrir að ný líkbrennsla hefji starfsemi á næsta ári. „Ég er ánægð að þessi vandi sé leystur farsællega eftir margra ára óvissu. Með viljayfirlýsingunni eru tvær flugur slegnar í einu höggi; annars vegar bráðavandinn sem blasti við í málinu og hins vegar erum við að nútímavæða mikilvæga innviði á umhverfisvænan hátt fyrir almenning.“ er haft eftir Þorbjörgu S. Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Kirkjugarðar Reykjavík Tengdar fréttir Brenna líkin á nóttunni Forsvarsmenn Kirkjugarða Reykjavíkur hafa lagt til að lík verði brennd í bálstofunni í Öskjuhlíð að næturlagi á meðan endurskoðun á starfsleyfi bálstofunnar stendur yfir. 15. nóvember 2024 10:44 Garðabær gefur grænt ljós á bálstofu og athafnahús sem verður opið öllum Fyrirtækið Tré lífsins hefur fengið heimild hjá Garðabæ til að byggja allt að 1.500 fermetra byggingu norðan við Vífilsstaðavatn, með salarkynnum fyrir athafnir á borð við skírnir, hjónavígslur og útfarir, auk bálstofu. 16. september 2021 06:45 „Okkur finnast þetta vera stjórnsýsluleg fantabrögð“ „Við erum algjörlega steinhissa og í raun misboðið yfir þeim fréttum að ráðuneytið skuli þegar eiga í viðræðum við KGRP um rekstur nýrra bálstofu,“ segir Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir, forsvarskona og stofnandi Trés lífsins. 8. mars 2023 06:41 Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Fleiri fréttir Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Sjá meira
Brenna líkin á nóttunni Forsvarsmenn Kirkjugarða Reykjavíkur hafa lagt til að lík verði brennd í bálstofunni í Öskjuhlíð að næturlagi á meðan endurskoðun á starfsleyfi bálstofunnar stendur yfir. 15. nóvember 2024 10:44
Garðabær gefur grænt ljós á bálstofu og athafnahús sem verður opið öllum Fyrirtækið Tré lífsins hefur fengið heimild hjá Garðabæ til að byggja allt að 1.500 fermetra byggingu norðan við Vífilsstaðavatn, með salarkynnum fyrir athafnir á borð við skírnir, hjónavígslur og útfarir, auk bálstofu. 16. september 2021 06:45
„Okkur finnast þetta vera stjórnsýsluleg fantabrögð“ „Við erum algjörlega steinhissa og í raun misboðið yfir þeim fréttum að ráðuneytið skuli þegar eiga í viðræðum við KGRP um rekstur nýrra bálstofu,“ segir Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir, forsvarskona og stofnandi Trés lífsins. 8. mars 2023 06:41