Erlent

Fær­eyingar krefjast sjálf­stæðrar utan­ríkis­stefnu

Jón Ísak Ragnarsson og Rafn Ágúst Ragnarsson skrifa
Forsætisráðherra Danmerkur, lögmaður Færeyja og formaður landstjórnar Grænlands héldu blaðamannafund að ríkisfundi loknum í dag.
Forsætisráðherra Danmerkur, lögmaður Færeyja og formaður landstjórnar Grænlands héldu blaðamannafund að ríkisfundi loknum í dag. Vísir/Rafn

Færeyingar fara fram á meira sjálfstæði í utanríkismálum. Þeir vilja geta gengið í auknum mæli í alþjóðleg samtök og haft meiri stjórn á eigin stefnu út á við. Þetta kom fram í máli Aksel Jóhannessen, lögmanns Færeyja, eftir ríkisfund danska samveldisins sem haldinn er tvisvar á ári.

Mette Frederiksen, forsætirsáðherra Danmerkur, Aksel V. Jóhannesen, lögmaður Færeyja, og Jens Frederik-Nielsen, formaður landstjórnar Grænlands, ræddu málin á svokölluðum ríkisfundi í dag. Hann sækja leiðtogar og ráðherrar úr ríkisstjórnum Færeyja, Grænlands og Danmerkur. Fundurinn fór fram í Færeyjum.

Í gær fór óformlegur fundur fram á eyjunni Tindhólmi, en eftir þann fund sagði Aksel í viðtali við Kringvarpið að hann hefði sagt við kollega sína að Færeyingar færu fram á meira sjálfstæði í utanríkismálum.

Færeyingar flögguðu íslenska þjóðfánanum í dag.Vísir/Rafn

Fundurinn sjálfur var haldinn í skrifstofum lögmannsins á Þinganesi í dag, og þar viðhafði Aksel sambærilegan málflutning, og sagðist vona að danska ríkisstjórnin sæi sér fært að samþykkja það.

Vill fjárfesta í hernaðarinnviðum

Mette Frederiksen talaði aðallega um varnarmál og var tíðrætt um mikilvægi þétts hernaðarlegs sambands danska konungsríkisins. Hún hét því að styrkja varnir á Grænlandi. Hún sagði einnig að Danmörk hygðist fjárfesta mikið í Færeyjum og Grænlandi.

Það væri vilji ríkisstjórnarinnar að fjárfesta í hernaðarlegum innviðum sem og öðrum innviðum á Færeyjum en sérstaklega á Grænlandi.

Jens Frederik Nielsen, formaður landstjórnar Grænlands, sagði Grænland hafa lengi viljað auknar heimildir í utanríkismálum. Hann lagði einnig mikla áherslu á það að komið verði fram við Grænland sem jafningja til að mynda í Norðurlandaráði en í dag eiga Grænland aðeins einn fulltrúa, samanber þá sjö sem við Íslendingar eigum og þá átján sem Danir eiga.

Mette Frederiksen er forsætisráðherra Danmerkur.Vísir/Rafn

Rafn Ágúst fréttamaður Vísis er í Færeyjum og ræddi við ráðherrana að loknum blaðamannafundi. Hann segir að Mette Frederiksen hafi engum spurningum svarað um kröfur Færeyinga um meira sjálfstæði hvað utanríkismálin varðar. Hún hafi snúið upp á spurninguna og varið miklum tíma í að ræða öryggis- og varnarmál.

Hún hafi samþykkt að veita viðstöddum fréttamönnum viðtöl að loknum blaðamannafundi, en eftir fundinn hafi hún yfirgefið svæðið án þess að veita viðtal.

Ánægður með samstarf Færeyja og Íslands

Aksel Jóhannesen lögmaður Færeyja er vongóður um að Danir muni koma til móts við kröfur Færeyinga.

Heldur þú að danska ríkisstjórninn muni koma til móts við óskir ykkar um aukið sjálfstæði í utanríkismálum?

„Það vona ég og þær samræður sem við höfum átt með dönsku ríkisstjórninni hefur verið jákvæð. Ég held að pólitískt séð skilji danska ríkisstjórnin þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í framtíðinni og að við þurfum að mæta þeim áskorunum.“

Aksel Johannesen segist hafa átt jákvæðar samræður með dönsku ríkisstjórninni.Vísir/Rafn

„Ég er bjartsýnn á það að við getum gert samkomulag við dönsku ríkisstjórnina til að fá það utanríkispólitíska sjálfstæði sem við þurfum á að halda.“

Finnst þér eitthvað táknrænt við að þessi fundur og þessi ummæli þín komi á þjóðhátíðardegi Íslendinga sem er jú dagurinn þar sem því er fagnað að Ísland varð sjálfstætt lýðveldi utan hvers konar ríkjasambands?

„Það er það því miður ekki en til hamingju með þjóðhátíðardaginn. Við í Færeyjum erum mjög ánægð með það samstarf sem við eigum með Íslandi og við vonumst til að geta átt ábátasamt og náið samstarf með Íslandi í framtíðinni.“

Jens Frederik Nielsen er formaður landstjórnar Grænlands.Vísir/Rafn

Jens Frederik Nielsen lagði mikla áherslu á að samband ríkja samveldisins yrði á jafningjagrundvelli.

Nú vorum við Íslendingar í sömu pólitísku stöðu og þið fyrir einhverjum áratugum síðan en öðluðumst sjálfstæði fyrir akkúrat 81 ári í dag. Horfa Grænlendingar til Íslands og okkar vegferð til sjálfstæðis?

„Einmitt núna starfar Grænland á grunni sem gerir okkur kleift að öðlast sjálfstæði í framtíðinni. Í því ferli eru aðrir hluti sem við þurfum að skoða í samhengi þess ríkjasambands sem við erum í akkúrat núna. Grænland vill þjóðaratkvæðagreiðslu þegar öllu er á botninn hvolft en nú erum við í þeirri stöðu að við þurfum að fara í saumana á jafnræðinu og það er það sem við erum að gera.“

Fulltrúar Grænlands, Jens Frederik-Nielsen landstjórnarformaður og Múte B. Egede fjármálaráðherra og fyrrverandi landstjórnarformaður.Vísir/Rafn
Lars Løkke í góðum gír.Vísir/Rafn
Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, í þungum þönkum að loknum fundi.Vísir/Rafn




Fleiri fréttir

Sjá meira


×