Innlent

Þyrlan aftur­kölluð og hinn slasaði sóttur á björgunarskipi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar var á leið í loftið um  klukkan 13:25.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var á leið í loftið um  klukkan 13:25. Vísir/Vilhelm

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á öðrum tímanum vegna slasaðs skipverja í Ísafjarðardjúpi. Þyrlan var kölluð út á fyrsta forgangi.

Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir að auk þyrlusveitar sinni sjóbjörgunarsveitir af Vestfjörðum útkallinu.

Reikna má með því að þyrluflugið frá Reykjavík vestur á firði taki tæplega klukkustund.

Uppfært klukkan 13:58

Aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar var í framhaldinu afþökkuð og siglt með slasaða skipverjann á björgunarskiptinu Gísla Jóns til Ísafjarðar til aðhlynningar.

Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×