Erlent

Diplómatinn sem grunaður var um njósnir er látinn

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Maðurinn var handtekinn fyrr í vikunni, grunaður um að hafa stundað njósnir.
Maðurinn var handtekinn fyrr í vikunni, grunaður um að hafa stundað njósnir. Getty

Sænskur diplómati, sem var handtekinn vegna gruns um njósnir, er látinn. Maðurinn fannst látinn í gærkvöldi en hann var handtekinn síðastliðið sunnudagskvöld, grunaður um að hafa stundað njósnir á meðan hann vann hjá sænsku utanríkisþjónustunni.

Fram hefur komið í sænskum fjölmiðlum að maðurinn hafi starfað hjá mörgum sendiráðum landsins víða um heim. Grunur er um að málið tengist nýlegri afsögn varnarmálaráðgjafa sænsku ríkisstjórnarinnar. Að svo stöddu liggja ekki fyrir upplýsingar um hvernig andlát mannsins bar að. Maðurinn var handtekin á heimili sínu þar sem gerð var húsleit í tengslum við rannsókn málsins hvað snýr að meintum njósnum.

Anton Strand, lögmaður mannsins hefur staðfest andlát skjólstæðings síns að því er fram kemur í frétt Expressen. Lögreglan hefur einnig staðfest að andlát mannsins sé til rannsóknar en tekur fram að ekki sé grunur um að það hafi borið að með saknæmum hætti.

„Í nótt bárust mér þær sorglegu fréttir að starfsmaður utanríkisráðuneytisins sé látinn. Hugur minn er hjá fjölskyldu, vinum og samstarfsfólki starfsmannsins. Af virðingu við hinn látna mun ég ekki tjá mig um frekari smáatriði,“ hefur Aftonbladet eftir Mariu Malmer Stenergard, utanríkisráðherra Svíþjóðar.

Upplýsingar um andlát mannsins höfðu verið birtar innanhúss í utanríkisráðuneytinu í dag að því er fram kemur í umfjöllun Aftonbladet sem greinir frá því í morgun að hinn látin sé sá er var handtekinn grunaður um njósnir.

„Því miður getum við staðfest að starfsmaður utanríkisþjónustunnar er látinn. Af tillitsemi við aðstandendur munum við ekki veita frekari upplýsingar,“ segir í svari ráðuneytisins til Aftonbladet.

Lögreglan hefur ekki veitt nánari upplýsingar um hvað fellst í umræddum grun um njósnir, en meint brot eru sögð hafa átt sér stað á tímabilinu 1. október til 11. maí. Maðurinn sem var handtekinn fyrr í vikunni var síðan látinn laus gegn tryggingu. Áður hefur verið haft eftir lögmanni mannsins að hann neiti öllum ásökunum um saknæmt athæfi.

Sjá einnig: Gamlar nektar­myndir felldu glæ­nýjan þjóðaröryggis­ráðgjafa Sví­þjóðar

Samkvæmt frétt SVT tengdist handtaka diplómatans öðru máli sem varðar viðkvæmar myndir af nýskipuðum þjóðaröryggisráðgjafa sænsku ríkisstjórnarinnar, Tobias Thyberg. Thyberg steig til hliðar sama dag og hann var skipaður eftir að gamlar nektarmyndir af honum af stefnumótasíðu skutu upp kollinum.

Saksóknari hefur ekki heldur viljað tjá sig um meint tengsl málanna að því er fram kemur í umfjöllun SVT.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×