Sýknaður af ákæru fyrir kynferðisáreitni gegn barni Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 24. apríl 2025 19:10 Umrætt atvik átti sér stað í veislu á veitingahúsi í Garðabæ. Vísir/Egill Aðalsteinsson Karlmaður hefur verið sýknaður af ákæru um kynferðislega áreitni og brot á barnaverndarlögum. Honum var gefið að sök að hafa kysst sextán ára stúlku á kinnina, strokið rass hennar og þrýst henni upp að sér gegn vilja hennar í veislu á veitingastað í Garðabæ.
Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm þess efnis í síðustu viku. Í ákærunni var maðurinn sakaður um kynferðislega áreitni og brot á barnaverndarlögum með því að hafa, aðfaranótt laugardagsins 23. júlí 2022, kysst stúlku undir lögaldri við bar veitingahússins. Síðar á dansgólfinu hafi hann strokið yfir rass hennar utan klæða og þrýst henni upp að sér gegn hennar vilja. Með háttseminni hafi hann sýnt henni vanvirðandi háttsemi, yfirgang, ruddalegt og ósiðlegt athæfi auk þess að særa hana og móðga. Þess var krafist að maðurinn yrði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Sjálfur neitaði hann sök og krafðist bæði sýknu og frávísunar bótakröfu frá dómi. Hélt hún væri orðin tvítug Í málsatvikum dómsins segir að stúlkan hafi mætt í veislu á veitingastað í Garðabæ ásamt bróður sínum og föður. Maðurinn hefði þar komið upp að henni og farið að snerta hana og reyna að kyssa. Hann hafi sagt að þetta væri í lagi þar sem þau væru ekki skyld. Fram kemur að stúlkan hafi verið dóttir sambýlismanns móðursystur mannsins. Hann hafi haldið óviðeigandi hegðuninni áfram á dansgólfi veitingastaðarins og reynt að kyssa hana. Hún hafi frosið og ekkert sagt. Í lögregluskýrslu rúmum mánuði síðar sagðist maðurinn hafa haldið að stúlkan væri orðin tvítug þar sem hún hafi verið að drekka áfengi. Hann sagðist hafa kysst hana fyrr um kvöldið en það verið vinakoss sem fólk gæfi þegar það hittist. Að öðru leyti neitaði hann sök. Fjölskyldutengslin honum ekki kunnug Fyrir dómi sagðist maðurinn ekki hafa vitað að hún væri dóttir sambýlismanns móðursystur hans. Þá sagðist hann ekki kannast við að hafa sagt að þetta væri allt í lagi því þau væru ekki skyld. Í skýrslu fyrir dómi sagðist stúlkan hafa þekkt manninn frá því að hún var lítil og hitt hann í gegnum tíðina í matarboðum. Í veislunni höfðu þau ekki hist um hríð og maðurinn haft orð á því að hún væri orðin „fullorðinslegri“. Hún hafi sagt honum að hún væri sextán að verða sautján ára. Í framhaldinu hafi hann farið að sýna af sér þá óviðeigandi hegðun sem fyrr er lýst. Hann hafi reynt að kyssa hana á munninn en hún snúið sér frá honum þannig að kossinn hefði lent á kinninni. Síðar á dansgólfinu hafi maðurinn reynt aftur að kyssa hana og strokið rass hennar. Hún hafi strax litið í kring um sig til að sjá hvort einhver hefði séð þetta. Hálfsystir hennar og stjúpsystir hafi þá litið skringilega á hana. Í skýrslutöku sagði maðurinn athæfið hafa verið hluti af dansinum. Hendur hans hefðu nokkrum sinnum farið yfir „rassasvæðið“ en það hafi ekki verið í „fjandsamlegum eða perralegum“ tilgangi. Þá kannaðist hann ekki við að hafa þrýst stúlkunni upp að sér. Hann kvaðst ekki hafa verið að reyna við stúlkuna eða upplifað kynferðislega löngun til hennar. Taldi ekki sannað Upptökur eftirlitsmyndavéla frá kvöldinu voru lagðar til grundvallar í málinu. Í niðurstöðum dómsins segir að á upptökunum sjáist maðurinn og stúlkan tala saman. Þau sjáist oft halla sér hvort upp að öðru og tala í eyra hins, en í skýrslutöku sagði maðurinn háværa tónlist hafa verið í gangi. Þá sjáist þau oft taka utan um hvort annað og dansa saman. Þó hafi ekki verið hægt að sjá að maðurinn hafi reynt að kyssa hana við barinn. Á upptöku af dansgólfinu einhverju síðar sjáist þau dansa saman og hönd hans fara yfir rassasvæði hennar. Aftur á móti hafi ekki verið hægt að sjá að hann hafi þrýst henni upp að sér. Sem fyrr segir fór frásögnum stúlkunnar og mannsins um fyrri kynni ekki saman í málinu. Í dóminum taldist ekki hægt að sanna að maðurinn hefði vitað hve gömul stúlkan var. Vegna staðfastrar neitunar mannsins taldist ekki heldur hægt að leggja til grundvallar að hann hafi sagt við stúlkuna að þau væru skyld og því væri „þetta allt í lagi“. Þá hafði maðurinn staðfastlega neitað að hafa kysst stúlkuna á kinnina við barinn, og því ekki hægt að sanna að hann hafi gert það þar sem það sást hvergi á öryggismyndavélum. Loks taldi dómari dans þeirra tveggja á dansgólfinu, sem stúlkan er sögð hafa tekið virkan þátt í, ekki umfram það sem talist getur hluti af nokkuð hefðbundnum dansi tveggja einstaklinga. Það var mat dómsins að ekki lægi fyrir sönnun þess svo hafið sé yfir skynsamlegan vafa að maðurinn hafi í umrætt sinn sýnt af sér þá háttsemi sem honum var gefið að sök í skilningi barnaverndarlaga eða almennra hegningarlaga. Maðurinn var því sýknaður af kröfum ákæruvaldsins og einkaréttarkröfu stúlkunnar var vísað frá dómi.
Garðabær Dómsmál Ofbeldi gegn börnum Kynferðisofbeldi Barnavernd Mest lesið Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Erlent Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Erlent Stuðningsyfirlýsing Össurar eins og koss dauðans Innlent Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Innlent Þau fái heiðurslaun listamanna Innlent Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Erlent Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Innlent Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Innlent Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Innlent Fleiri fréttir „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Eldur í íbúð við Snorrabraut Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Vara fólk við póstum og skilaboðum frá Grundarheimilunum Vara við póstum frá Grund og „jafnréttisþreyta“ Stuðningsyfirlýsing Össurar eins og koss dauðans Fjárlög, skattar og skipti á dánarbúum á laugardagsþingi Þau fái heiðurslaun listamanna Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Vill finna bróður sinn „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar endurnýjað Svandís stígur til hliðar Flugvél á leið til Egilsstaða snúið við yfir Hallormsstað Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Sigmundur Davíð og Kemi Badenoch meðal gesta í boði Meloni Sjá meira