Segist afhjúpa sannleikann í „tengdamömmumálinu“ Jón Þór Stefánsson skrifar 7. apríl 2025 09:07 Ásthildur Lóa sagði af sér í kjölfar þess að Ólöf Björnsdóttir lét forsætisráðuneytið og fjölmiðla vita af máli hennar. Ólöf Björnsdóttir, fyrrverandi tengdamóðir barnsföður Ásthildar Lóu Þórsdóttur fyrrverandi barnamálaráðherra, segist ekki hafa verið að ganga pólitískra erinda þegar hún lét forsætisráðuneytið og svo fréttamann vita af máli ráðherrans sem varð til þess að hún sagði af sér.
Þetta kemur fram í skoðanagrein sem birtist á Vísi í dag, undir titlinum Sannleikurinn í tengdamömmumálinu. Þar segir Ólöf sína hlið á máli Ásthildar Lóu og Eiríks Ásmundssonar og ítrekar að hún telji Ásthildi hafa tálmað Eirík í umgengni við son þeirra, sem þau eignuðust þegar Eiríkur var táningur en Ásthildur rúmlega tvítug. Aldrei kosið Sjálfstæðisflokkinn Að mati Ólafar hafa staðreyndir málsins verið kæfðar niður og „ekkert nema samsæriskenningar“ fengið að komast að í umræðunni, sem hafi einkennst af tilfinningum og heift. „Það er leitun að öðru eins bulli og hefur fengið að grassera á samfélagsmiðlum,“ segir Ólöf. Hún segist hafa upp á sitt einsdæmi hafa ákveðið að senda erindi málsins á forsætisráðuneytið vegna þess að henni þótti óviðeigandi að Ásthildur sinnti embættinu með hennar forsögu. Síðan hafi hún sent erindið á fréttamann sem hún treysti eftir að ráðuneytið hafnaði að veita henni um áheyrn. „Ég var ekki að ganga erinda eins eða neins eins og ítrekað hefur verið haldið fram á samfélagsmiðlum,“ segir Ólöf. Hún tekur fram að hún hafi aldrei kosið Sjálfstæðisflokkinn. „Ég var Vilmundarkona á sínum tíma og Jóhanna Sigurðardóttir gerði margt gott, Vinstri græn hef ég líka kosið en aldrei Sjálfstæðisflokkinn. Síðast kaus ég Samfylkinguna en ég er ekki búin að ákveða mig hvað ég kýs næst en það verður ekki Flokkur fólksins.“ Eiríkur hafi víst verið fimmtán Í grein sinni segir Ólöf að henni finnist mörg atriði málsins enn þurfa að skýra í opinberri umræðu. Mikið hefur verið rætt um aldur Ásthildar og Eiríks þegar þau áttu í sambandi. Ólöf segir að samband þeirra hafi sannarlega hafist þegar Eiríkur var fimmtán ára og Ásthildur 22 ára, þó að hann hefði verið orðinn sextán þegar barn kom undir. Ólöf segir að Ásthildur hafi viðurkennt þetta þegar hún hringdi í hana í fyrsta skipti til að ræða málið. Það samtal hafi átt sér stað í vitna viðurvist sem geti staðfest það. Ákveðin vonarglæta í Trú og lífi Þá segir Ólöf að Eiríkur hafi átt erfiða æsku og hann hafi leitað skjóls hjá trúarhópnum Trú og líf, þar sem hann og Ásthildur kynntust. „Eiríkur kemur af brotnu heimili. Æska hans var þrautaganga og unglingsárin reyndust honum afar þung. Ákveðin vonarglæta birtist honum þegar hann sá auglýstar unglingasamkomur í trúarsöfnuðnum Trú og líf, þrátt fyrir að hafa í reynd aldrei ræktað kristna trú. Þar kynntist hann barnsmóður sinni.“ Mikið hefur verið deilt um hvort Ásthildur hafi verið í hlutverki leiðbeinanda hjá Trú og lífi. Sjálf hefur hún hafnað því, og þá sagði Halldór Lárusson, einn af stofnendum og helstu forsvarsmönnum Trúar og lífs, í samtali við Vísi að ekki hafi viðgengist hjá hópnum að einhverjir væru í slíkum hlutverkum. Ólöf gefur lítið fyrir það. „Hún hafnar því að hafa verið í hlutverki einhvers konar leiðbeinanda. Hvað svo sem safnaðarmeðlimur á fullorðinsaldri hefur verið að gera á vikulegum unglingasamkomum, án þess að unglingar teldu hana þar í hlutverki leiðbeinanda og fulltrúa eldri safnaðarmeðlima, fæ ég illa skilið.“ Segir Ásthildi hafa staðið í vegi fyrir umgengni Ólöf fjallar líka um meinta tálmun Ásthildar í garð Eiríks. Þess má geta að Ásthildur hefur hafnað ásökunum um slíkt, og Símon Hafþórsson, blóðsonur Ásthildar og Eiríks, sagt þær í besta falli hlægilegar. „Eiríkur fór í gegnum formlegt ferli innan kerfisins en það var ekki nóg, Ásthildur Lóa tók það ekki til greina, hún tók ekkert til greina. Það er þess vegna ótrúlegt að heyra hana halda því fram að hún hafi ekki tálmað umgengi Eiríks við son sinn. Að Eiríkur hafi ekki sýnt syni sínum áhuga, á sama tíma og hún hefur lýst því að hún hafi ekki treyst honum til þess að taka barnið, þegar hann óskaði eftir því,“ segir Ólöf. Ásthildur hafi á sínum tíma komið því í kring að Eiríkur fengi einungis að hitta soninn í tvo klukkutíma fyrsta sunnudag hvers mánaðar. „Þegar svo á reyndi, gekk Eiríki illa að fá samkomulagið efnt. Þegar fyrsta sunnudag mánaðar bar upp á tíma sem ekki hentaði Ásthildi Lóu, tók hún ekki í mál að leyfa Eiríki og syni hans að hittast helgina á eftir. Eftir nokkrar slíkar skyndilegar afboðanir varð Eiríki ljóst að barnsmóðir hans, hefði lítinn ef nokkurn áhuga á því að hann væri partur af lífi sonar síns og stæði beinlínis í vegi fyrir því.“ Ólöf furðar sig á því að fólk hafi ákveðið að trúa Ásthildi en ekki Eiríki. „Í þessu máli hefur fólk hins vegar kosið að trúa ekki barnsföður Ásthildar Lóu. Þess í stað hefur það tekið hennar frásögn, í hreint makalausri yfirlýsingu, sem algildum sannleik. Þeir sem það gerðu mættu horfa fastar í augu við eigin samvisku, hafandi litið fram hjá eða góðkennt ótrúlega ósmekklegan áburð og dylgjur.“
Barnamálaráðherra segir af sér Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Flokkur fólksins Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Viðreisn Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum Sjá meira